Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Bjarki Sigurðsson skrifar 5. júní 2026 23:48 Skúli Jónsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Arnar Fjórtán ára stúlka hlaut talsverða áverka eftir að eldri stúlka lét spörkin dynja á henni í Hafnarfirði síðustu helgi. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir árásir sem þessa geta haft grafalvarlegar afleiðingar.
Lögreglu barst tilkynning seint á laugardagskvöld um að stúlka á grunnskólaaldri lægi meðvitundarlaus í bílakjallara við Fjörðinn í Hafnarfirði. „Lögregla fer þarna á vettvang ásamt sjúkraliði. Þar er stúlkan í bílakjallaranum, meðvitundarlaus og búin að æla yfir sig. Hún hefur greinilega orðið fyrir einhverri árás,“ segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Önnur stúlka grunuð Stúlkan var flutt á Landspítalann og þar kom í ljós að hún var með brákað viðbein, sár á höfði og var marin víða um líkamann. „Það kemur síðan í ljós í samtölum við ungmenni þarna að það virðist vera sem stúlka eilítið eldri hafi verið að sparka bara í hana þarna liggjandi. Sem er mjög fólskulegt og hættulegt,“ segir Skúli. Getur endað illa Hún hefur verið útskrifuð af spítala og málið nú til rannsóknar. „Í svona máli er verkefnið að reyna að ná utan um meðal annars tengslin, eftirlitsmyndavélar og ræða við vitnin. Við erum með töluvert af nöfnum ungmenna sem við þurfum að ræða við,“ segir Skúli. Fjörður er við Fjarðargötu í Hafnarfirði.Vísir/Vilhelm Hann leggur áherslu á að svona mál geti endað með ósköpum. „Við eigum svo mörg mál í gegnum tíðina þar sem þetta hefur haft svo alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir þolandann og gerandann, sem í þessu tilviki er mjög ungur einstaklingur. Þetta er eitthvað sem fylgir fólki alla ævi og lífið gæti verið ónýtt,“ segir Skúli.
Lögreglumál Hafnarfjörður Börn og uppeldi Mest lesið „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira