Handbolti

Bene­dikt verður læri­sveinn Arnórs

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Benedikt er mættur til Danmerkur.
Benedikt er mættur til Danmerkur. tth holstebro

Benedikt Gunnar Óskarsson er genginn til liðs við TTH Holstebro, liðið sem Arnór Atlason þjálfar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Benedikt gerir eins árs samning við félagið í boði fyrirtækisins Rejsechefen.

Benedikt er uppalinn hjá Val á Íslandi en hefur síðustu ár spilað hjá Kolstad í Noregi. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann unnið fjölda meistaratitla og varð síðast Noregsmeistari í vor.

TTH Holstebro hefur þann háttinn á að leikmenn liðsins eru í boði ákveðinna fyrirtækja. Ferðaþjónustufyrirtækið Rejsechefen Holstebro styrkir komu Benedikts og hann mun klæðast treyju með merkjum fyrirtækisins.

Arnór Atlason er þjálfari TTH Holstebro og Benedikt fannst það spennandi tækifæri að skipta til danska liðsins.

„TTH Holstebro er spennandi félag og mig hefur lengi langað til að spreyta mig í dönsku deildinni. Þegar tækifærið gafst fannst mér þetta vera rétta skrefið fyrir mig. Ég hlakka til að verða hluti af félaginu og upplifa danskan handbolta af eigin raun.

Það verður líka spennandi að spila undir stjórn Arnórs Atlasonar, sem ég álít frábæran þjálfara. Ég hlakka til að þroskast sem leikmaður, sýna mig og sanna í bæði dönsku deildinni og Evrópudeildinni og vonandi taka þátt í að ná góðum árangri fyrir félagið,“ sagði Benedikt á heimasíðu félagsins.

Bætir upp fyrir smæðina á öðrum sviðum

Þjálfarinn Arnór fór fögrum orðum um leikstjórnandann.

„Vegna meiðsla Thomasar Damgaard þurfum við fleiri möguleika í mikilvægri stöðu. Með því leikjaálagi sem við búumst við á komandi tímabili er mikilvægt að við höfum breidd í hópnum. Þrátt fyrir að Benni sé aðeins 23 ára kemur hann með mikla reynslu. Hann hefur unnið meistaratitla bæði á Íslandi og í Noregi, spilað Evrópukeppni og öðlast dýrmæta reynslu í Meistaradeildinni með Kolstad. Þetta er leikmaður sem hefur þegar spilað mikið á háu stigi.

Benni er spennandi leikstjórnandi með mikinn hraða í sínum leik og mjög gott handboltahöfuð. Hann tekur góðar ákvarðanir, gerir fá mistök og er fær í að setja samherja sína í góðar stöður. Hann er kannski ekki stærsti leikmaðurinn líkamlega, en hann bætir það upp með hraða sínum, yfirsýn og hæfni til að lesa leikinn. Þetta eru eiginleikar sem passa mjög vel inn hjá okkur,” sagði Arnór á heimasíðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×