Hafnar kreddum um verðbólguna Sigurgeir Þorkelsson skrifar 11. júní 2026 17:29 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, er fundarstjóri og stýrir pallborði. Vísir/Anton Brink Samsetning verðbólgu hérlendis er flókin og orsakir hennar ekki svo einfaldar að fyrst komi launahækkanir og í kjölfarið verðbólga. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verkalýðshreyfinguna óska eftir umræðu sem byggir ekki á kreddum heldur gögnum. „
Við efndum til þessa fundar, VR og Fagfélögin, í tilefni þeirrar miklu umræðu sem ríkjandi hefur verið í samfélaginu um verðlag og verðbólgu,“ sagði Halla í samtali við fréttastofu. Fagfélögin og VR héldu í morgun fundinn Eggið og hænuna, opinn fund um verðbólgu, verðlag og laun sem Halla stýrði. Félögin eru samanlagt með fjörutíu prósent launafólks á almennum vinnumarkaði innan sinna vébanda. Halla segir að leiðandi stef í umræðunum hafi verið að verðbólgan sé mestmegnis til komin vegna launahækkana. „Þarna var sýnt fram á með gögnum, rannsóknum erlendum og innlendum, að sambandið er ekki svo einfalt, oftar er það verðið sem hækkar og síðan kemur þrýstingur á launahækkun í kjölfarið.“ Á fundinum fjallaði meðal annars Viðar Ingason, hagfræðingur VR, um samspil verðbólgu og launa og Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, um dýrasta land í heimi: Ísland. „Við viljum benda á að samsetning verðbólgu er flókin og verðlag á Íslandi er gífurlega hátt. Það þarf að skilja verðbólguna og takast á við hana út frá gögnum, ekki kreddum.“ Halla segir fundinn hafa verið fjölsóttan, fullt hafi verið út úr dyrum og mjög áhugaverðar umræður tekið við að erindunum loknum. Búast megi við meira af þessum toga í kjölfarið. Vonir bundnar við þríhliða viðræður Þríhliða viðræður milli stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar standa yfir vegna þeirrar stöðu sem uppi er á vinnumarkaði. Mælist verðbólga yfir 4,7% í ágúst virkjast svokallað forsenduákvæði kjarasamninga sem heimilar að þeim sé sagt upp. Halla bindur vonir við að viðræðurnar skili árangri en bendir á að eina tólið sem hún búi yfir sem formaður VR sé að krefjast hærri launa fyrir félagsfólk. Marghliða samráð þurfi til að ráða niðurlögum verðbólgunnar. „Okkar krafa núna er að fyrirtæki sem stýra að miklu leyti verðlagningu í landinu, auk stjórnvalda, sýni að þau séu tilbúin til að taka þátt í því verkefni að ná niður verðbólgu. Að öðrum kosti höfum við ekki annað að gera í haust en að slíta kjarasamningum.“ „Verðbólga á Íslandi er að hluta til hagnaðardrifin. Það eru líka dæmi um fyrirtæki sem hækka verð af því þau geta það. Að taka á þessu er hluti af því að losa um þann hluta vandans sem er heimatilbúinn.“
Verðlag Kjaramál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira