Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. júní 2026 23:41 Már Wolfgang Mixa segir að ekki sé einungis hægt að reiða á stýrivextina. Vísir/Arnar Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telur að vilji íslensk stjórnvöld ná verðbólgunni niður þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir og til að mynda hækka skatta. Stýrivextir nægi ekki einir og sér til að ná niður verðbólgu.
Már ræddi verðbólguna í Reykjavík síðdegis í dag og tekur Bandaríkin sem dæmi en samkvæmt nýjustu mælingum sé hún komin upp í 4,2 prósent vestanhafs. Til samanburðar var Ísland á svipuðum stað fyrir ári síðan og voru stýrivextir þá í kringum 7,5 til 8 prósent. „Nú til samanburðar þá eru stýrivextir í Bandaríkjunum núna 3,75 prósent og reyndar líklegast fulllágir núna. Það eru nú augljóslega líkur á því að þeir hækki eitthvað. En þetta er svona ein vísbending um það hversu mikið misvægi er á stýrivöxtum hérlendis og erlendis,“ segir hann. Munurinn sé að erlendis sé ekki gert ráð fyrir því að stýrivextir séu eina tólið til að ná niður verðbólgu. „Nú höfum við verið að búa við mjög háa raunstýrivexti núna í tvö ár rúmlega og þeir virðast nú ekki skila miklu. Nú er komið fram að verðbólgan er að mörgu leyti knúin áfram af erlendum hækkunum og þá er kannski vert að spyrja sjálfan sig, er það rétt að Seðlabankinn sé einn að heyja þessa baráttu við verðbólgu, þarf ekki meira að koma til?“ spyr Már. Hærri skattar Hann segir að ríkið hafi óbeint reynt að draga úr þenslu með því að hækka opinber gjöld og leggja á bankaskatta. Slíkt dragi úr þenslu en á sama tíma auki það verðbólgu í landinu. „Því að það segir sig nokkuð sjálft að ef þú hækkar opinber gjöld fer það út í verðlag og með því að hækka bankaskatta fer það út í verðlag líka,“ segir hann. „Vextir eru jú ekkert annað en leigugjald og það er kannski kominn tími til að taka leiðinlegar ákvarðanir og hækka skatta, greiða niður skuldir og taka peninga úr umferð.“ Stýrivextir einir og sér slái ekki á verðbólguna. „Það þarf miklu meira til. Til þess þarf einfaldlega, eins og staðan er í dag, það þyrfti einfaldlega að hækka skatta,“ segir Már og bætir við að á sama tíma og skattar yrðu hækkaðir þyrfti að draga úr umsvifum ríkisins. „Þetta eru leiðinlegar ákvarðanir. Ég hef nú bent á það að það fylgir því fórnarkostnaður að ná niður verðbólgu og það er líka spurning hversu hár sá fórnarkostnaður á að vera.“ Hann tekur fram að spyrja þurfi sig sjálfan á sama tíma hvort það sé raunhæft að ná verðbólgunni svo mikið niður á Íslandi. „Ég held að það sé svona augljósa leiðin og það er óvinsæl leið ef það er markmiðið í sjálfu sér að ná niður verðbólgu.“
Verðlag Reykjavík síðdegis Skattar, tollar og gjöld Rekstur hins opinbera Íslenska krónan Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira