Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Árni Sæberg skrifar 12. júní 2026 12:02 Ming Ting lét ekki á miklu bera í réttarhöldunum og felldi ekki eitt einasta tár. Vísir/Vilhelm Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, hélt í hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún segir dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð. Skýrslutaka yfir Ming Ting hófst upp úr klukkan 10 í morgun, eftir nokkra töf vegna tæknilegra örðugleika. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Í ákæru á hendur henni er því lýst hvernig Ming Ting og Emeric Xavier Mancel eiga að hafa banað dóttur sinni, Catherine Delphine Mancel. Lesa má lýsingar á því í fréttinni hér að neðan: Í upphafi skýrslutökunnar sagði Ming Ting sagði að tilgangur ferðarinnar til Íslands hefði verið að skoða landið og svipta sig svo öll lífi. Hún væri ekki viss um það hvenær þau komu til landsins, það hefði verið einhvern tímann á tímabilinu 6. til 10. júní. Lögregla var kölluð til Edition-hótelsins í Reykjavík að morgni 14. júní í fyrra. Sat á stól á meðan faðirinn stakk hana Atvik næturinnar hefðu hafist inni á baðherbergi á hótelherbergi þeirra á Edition þar sem eiginmaður hennar hefði stungið dóttur hennar í hjartað þar sem hún sat á stól. Á meðan hefði hún kropið við hlið dóttur sinnar og haldið í hönd hennar. „Hún var mjög hugrökk, hún lét þetta gerast, hún kvartaði ekki, hún kom fram af hugrekki,“ sagði hún þegar sækjandi málsins, Karl Ingi Vilbergsson, settur héraðssaksóknari, spurði hana hvernig dóttir hennar brást við hnífstungunni. Karl Ingi Vilbergsson, settur héraðssaksóknari. Í bakgrunni er túlkur, sem túlkaði á frönsku. Fjölskyldan hefði verið inni á baðherberginu í tíu til tuttugu mínútur. Íhuguðu að kasta sér fram af brú Ming Ting tók fram að hnífstungan hefði verið skipulögð og með vilja allra. Ákveðið hefði verið sama kvöld að faðirinn myndi stinga dótturina í hjartað, þrátt fyrir að það væri ekki sú aðferð sem dóttirin hefði helst kosið. Fjölskyldan hefði meðal annars velt fyrir sér möguleikanum að kasta sér fram af brú en þau hefðu hætt við það vegna íslensku sumarnæturinnar, þau gætu ekki gert það í skjóli nætur. Vildi svefnlyf og áfengi Eftir það hefðu þau fært dóttur sína fram og lagt hana upp í rúm. Þar hefðu þau boðið henni áfengi og svefnlyf í þeim tilgangi að lina þjáningar hennar og flýta fyrir því að hún léti lífið. Þau hefðu keypt svefnlyfin í þeim tilgangi í Írlandi fyrir komuna til landsins, að beiðni dótturinnar. Dóttirin hefði þá misst meðvitund af og til næstu klukkutímana, að hún héldi. Hún hefði svo náð meðvitund um skamma stund og þá beðið föður sinn um að stinga sig aftur, sem hann hefði og gert. Skömmu síðar hefði hún hætt að draga andann. Ómar Örn Bjarnþórsson er verjandi Ming Ting.Vísir/Vilhelm Aðspurð sagði hún að þau hefðu talið það öruggari aðferð að nota hníf en að dóttirin tæki nægilega stóran skammt af svefnlyfjunum til þess að hún léti lífið. Þau hefðu ekki haft næga þekkingu á lyfjunum. Dóttirin hefði margítrekað að hún vildi alls ekki verða ein eftir á lífi, þess vegna hefðu þau notað þá aðferð sem þau töldu öruggasta. Þegar fréttin er birt hefur Ming Ting gefið skýrslu í um tvær klukkustundir, ætla má að annað eins sé eftir, miðað við samskipti sækjanda og verjanda. Að skýrslutöku lokinni koma vitni fyrir dóminn en líklega næst ekki að taka skýrslu af þeim öllum í dag. Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Sjá meira