Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júní 2026 08:22 Mette Marit hefur síðastliðnar vikur átt erfitt með öndun vegna sjúkdómsins. Per Ole Hagen/Getty Images Mette-Marit krónprinsessa Noregs hefur gengist undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur undandarið sést með súrefnisgleraugu.
Aðgerðin fór fram á Ríkisspítalanum í Osló og gekk vel er í frétt Verdens Gang (VG) haft eftir deildarstjóra á brjóstholsskurðdeild Ríkisspítalans, Arnt Fiane. Þá greindi hann einnig frá því að hún yrði lögð inn í nokkrar vikur til endurhæfingar og aðlögunar lyfja en að það sé vanalegt þegar fólk hefur nýlega gengist undir ígræðslu. „Þetta er föst venja til að stilla lyf, takast á við hugsanlega fylgikvilla og stunda endurhæfingu,“ er einnig haft eftir Are Holm sem er deildarstjóri á lungnadeild Ríkisspítalans. Hákon krónprins mun aðlaga dagskrá sína til að vera með krónprinsessunni á meðan hún jafnar sig eftir aðgerðina og í gær, þriðjudaginn 16. júní, tilkynnti hirðin að hann hefði aflýst allri dagskrá. „Krónprinshjónin þakka fyrir hlýjar og góðar kveðjur undanfarið. Hlýhugurinn skiptir miklu máli í þeirri krefjandi stöðu sem þau eru í,“ skrifar konungshirðin. Þann 5. júní, þegar tilkynnt var að Mette-Marit hefði verið sett á lista yfir ný lungu, upplýsti hirðin að hún myndi ekki gefa neina nýja uppfærslu um krónprinsessuna fyrr en eftir ígræðsluna.
Noregur Kóngafólk Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira