Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Elísabet Inga Sigurðardóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 20. júní 2026 14:38 Svona er bílaröðin á Þingvallaleiðinni, myndin var tekin á þriðja tímanum í dag. Vísir/Ingibjörg Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt.
Fréttastofa sló á þráðinn til að taka stöðu á umferðinni vegna tónlistarhátíðarinnar Bergmáls sem fram fer á Þingvöllum. Pétur segir umferð þó ganga þokkalega þrátt fyrir að margir bílar væru á ferðinni. Engin óhöpp hafi orðið í umferðinni þegar þessi frétt er skrifuð. Tuttugu þúsund manns munu bera hljómsveitina augum á Þingvöllum í kvöld. Hljómsveitin Kaleo spilar nú á sviðinu steinsnar frá Almannagjá. Hlusta má á tónleikana í beinni á Bylgjunni. Fréttamaður Sýnar er meðal þeirra sem nú eru í bílaröð. Bílaröðin hreyfist hægt og er umferðarteppa frá því fyrir Grafningsafleggjara. Á annað þúsund starfsmanna vinna að tónleikunum og hefur búnaður og hljóðfæri verið fluttur í tonnatali á svæðið. Jakob Frímann skipuleggjandi hvatti í morgun fólk til að leggja af stað sem fyrst til að forða sér undan umferðarþunga. Hann minnti á að rútur fari frá Klettagörðum 27 á hálftíma fresti og lagði sú fyrsta af stað klukkan tíu í morgun. „Og eru á hálftíma fresti út daginn. Svo er hægt að taka rútu aftur til baka ef menn eru orðnir saddir tóndaga,“ sagði Jakob Frímann við fréttastofu í morgun. Fréttastofa fékk ábendingu frá farþega um borð í rútu á leið til Þingvalla á þriðja tímanum. Sá sagðist sitja fastur í umferð. Góð loftkæling sé þó í rútunni og allir kátir. „Skömmu áður en maður kemur í Vinaskóg er algjör teppa alla leið að Þingvöllum,“ sagði farþeginn. Lýður Valberg tökumaður okkar og ljósmyndari er eins og svo margir aðrir fastur í bílaröð. Hann nýtti tækifærið til að smella af.Vísir/Lýður Valberg Bílaröðin er ansi löng.Vísir/Ingibjörg „Ef myndin er skoðuð vel sést að við erum sirka fimm kílómetra frá staðnum og þokumst lítið,“ skrifar lesandi Vísis sem sendi okkur þessa mynd. Bílaröðin nær nokkuð langt. Sumir farþegar virðast hafa ákveðið að skella sér út á meðan beðið er og njóta þannig veðurblíðunnar. Svona er útsýnið hjá einum lesanda Vísis. Áttu mynd af bílaröðinni? Þú getur sent okkur myndir hér.
Lögreglan Umferð Umferðaröryggi Þingvellir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Sjá meira