Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Birgir Olgeirsson skrifar 19. júní 2026 16:37 Parið sagðist hafa fengið hugmyndina um eggjatökuna eftir komuna til landsins. Í bílnum voru samt hitatöskur og hundruð eggja sem þau gátu greint eftir tegundum. Jói K Par frá Evrópu, sem staðið var að því að reyna að smygla hundruðum fuglaeggja og fimm lifandi hrossagauksungum úr landi með Norrænu, virðist hafa farið vítt og breitt um landið á þeim tveimur til þremur vikum sem það dvaldi hér.
Þetta segir Grímur Bollason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, í samtali við Vísi. Hann segir parið hafa verið meðvitað um að ólöglegt væri að reyna að flytja eggin og ungana úr landi. Þau gengust við brotinu og málinu lauk með sektargerð. Tilgangurinn er þó óljós. Grímur segir fólkið hafa nýtt sér réttarstöðu sakborninga og ekki gefið skýrar skýringar á því hvers vegna eggin voru tekin. Meðal eggjanna sem fundust í bifreið parsins voru rjúpu-, heiðlóu-, spóa-, æðar-, lóms-, hrossagauks-, ritu- og andaregg. Þá fundust einnig fimm lifandi hrossagauksungar. „Þau héldu því fram að þau hefðu eingöngu verið hér á landi sem ferðamenn og hugmyndin hafi kviknað á meðan á dvöl þeirra stóð að taka eggin,“ segir Grímur. Hann segir þann framburð ekki hafa þótt trúverðugan. Parið hafi verið með sérútbúnar hitatöskur meðferðis og þegar lögregla spurði út í eggin hafi það vitað nákvæmlega af hvaða fuglategundum þau voru. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvar eggin voru tekin. Grímur segir lögreglu telja að parið hafi farið um Suðurland, Norðurland og Austurland. Hann segir ekki liggja fyrir hvort fólkið tengist fuglafræði með einhverjum hætti. Samkvæmt lögum eru villtir fuglar almennt friðaðir nema sérstaklega sé kveðið á um annað, og friðun nær einnig til eggja og hreiðra. Af þeim tegundum sem fundust í bifreið parsins falla rjúpu-, heiðlóu-, spóa-, lóms- og hrossagauksegg ekki undir almennar undanþágur frá friðun. Öðru máli gegnir um tiltekin egg við þröng skilyrði. Heimilt getur verið að taka æðar- og önnur tilgreind andaregg á svæðum þar sem andavarp er mikið, en þá þarf veiðirétthafi að standa að eggjatökunni og skilja eftir minnst fjögur egg í hverju hreiðri. Slík egg má hvorki selja, kaupa, gefa né þiggja að gjöf. Rituegg má einnig aðeins taka á takmörkuðum svæðum þar sem slík eggjataka telst til hefðbundinna hlunninda.
Lögreglumál Norræna Fuglar Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira