Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Smári Jökull Jónsson og Atli Ísleifsson skrifa 23. júní 2026 14:16 Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs segist heyra á samtölum í Brussel að möguleikar Íslands til að ná góðum samningi séu góðir. Vísir/Lýður Utanríkisráðherra Noregs segir gjörbreytta mynd blasa við ákveði Íslendingar að ganga inn í Evrópusambandið. EES-samningurinn myndi þó halda en staða Norðmanna veikjast.
Ráðherrafundur EFTA hófst í Hörpu í gærmorgun. Þar skrifuðu fulltrúar EFTA-ríkjanna meðal annars undir framlengdan fríverslunarsamning við Palestínu um niðurfellingu tolla á iðnaðar- og sjávarútvegsvörum. Á fundinum var meðal annars Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs sem sagði mögulegar aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið geta haft mikil áhrif á Norðmenn. „Það er mjög margt líkt með Noregi og Íslandi og það er ljóst að það sem Íslendingar ákveða að gera mun hafa áhrif á umræðuna í Noregi. Það er mikilvægt fyrir okkur að fylgjast með og mjög margir Norðmenn munu fylgjast grannt með því sem gerist hér. Til dæmis er fiskiðnaðurinn í Vestur-Noregi mjög áhugasamur um að sjá hvers konar samning Ísland gæti mögulega fengið á því sviði,“ segir Barth Eide. Ef Íslendingar ákveða að taka upp samningaviðræður og í kjölfarið ganga í sambandið, hvað myndi það þýða fyrir EES-samninginn? „Formlega myndi það þýða að Ísland yrði áfram aðili að EES-samningnum en færi frá EFTA-hliðinni yfir til ESB. Formlega svarið er að samningurinn stæði,“ segir Barth Eide. Staðan verði þó gjörbreytt gangi Ísland í ESB og EES-samningurinn þá í raun tvíhliða á milli Noregs og ESB með lítilli viðbót fyrir Liechtenstein. Sú staðreynd að Ísland ætli að greiða atkvæði um áframhald viðræðna við ESB neyði Norðmenn til að endurmeta EES-samninginn. Bæði Ísland og ESB muni standa við sínar skuldbindingar þó að viðræður hefjist. „ESB vill gjarnan fá Ísland í sambandið. Ég heyri frá öllum sem ég tala við í Brussel að möguleikar Íslands til að ná góðum samningi séu mjög góðir því ESB vill hafa jafnvægi á milli stækkunar sambandsins til suðurs og austurs og stækkunar til norðurs og vesturs. Það er mjög hagstæður útgangspunktur fyrir Ísland,“ segir Barth Eide.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Noregur EFTA Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira