Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2026 06:20 Mehdi Taremi fagnar marki sínu fyrir Íran á móti Belgíu. Markið fékk þó ekki að standa og leiknum lauk með markalausu jafntefli. Getty/Stu Forster Bandaríkjamenn hafa ákveðið að aflétta ferðatakmörkunum fyrir HM-leikmenn Írans og auðvelda þeim þannig undirbúning fyrir síðasta leikinn í riðlakeppninni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá talsmanni heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna. Íranar hafa áður kvartað yfir ströngum ferðatakmörkunum sem þeir hafa sætt á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Liðið hefur bækistöðvar í Tijuana í Mexíkó en spilar alla leiki sína í riðlakeppninni í Bandaríkjunum. BREAKING: The U.S. eases restrictions on Iran's World Cup team, allowing the squad to travel two days before its next match, DHS spokesperson says. https://t.co/5TjwGROTrT— The Associated Press (@AP) June 23, 2026 Fyrir leikina gegn Nýja-Sjálandi (2-2) og Belgíu (0-0) í Kaliforníu þurftu þeir að ferðast til Bandaríkjanna rétt fyrir leiki og snúa aftur til Mexíkó strax að þeim loknum. Fyrir síðasta leikinn í riðlakeppninni gegn Egyptalandi, sem gæti tryggt Írönum sæti í útsláttarkeppni HM, fær liðið hins vegar að ferðast til Bandaríkjanna tveimur dögum fyrir leik. Leikurinn gegn Egyptalandi fer fram í Seattle aðfaranótt laugardags. Mikið hefur gengið á hjá íranska liðinu bæði fyrir og í upphafi HM. Vegna vandræða með vegabréfsáritanir og skipulag flutti Íran bækistöðvar sínar á HM frá Tucson í Arizona til Tijuana skömmu fyrir mót. Samskipti Írans og Bandaríkjanna hafa verið stirð og er sagt að bandarísk yfirvöld hafi neitað nokkrum meðlimum stuðningsliðsins um vegabréfsáritun. Leikmennirnir fengu vegabréfsáritun rétt fyrir upphaf mótsins.
HM 2026 í fótbolta Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira