Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Lovísa Arnardóttir skrifar 25. júní 2026 15:59 Dæmi um tölvupósta sem sendir hafa verið út. Lögreglan á Suðurlandi Lögreglan á Suðurlandi varar við tölvupóstum sem eru sendir út í nafni „netglæpalögreglunnar“ og hvetur fólk til að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda sem varða greiðslur. „
Um er að ræða tölvupóst sem berst frá „Netglæpalögregla“ sem ber heitið „Síðasta viðvörun – þetta getur leitt til handtöku“. Þessi tölvupóstur er sagður vera frá „Aðalstjórstjórn Alþjóðalagalöggu“ þar sem fjallað er um „Dómsköfnun“,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar kemur fram að í póstinum séu móttakendur beðnir um að svara með tölvupósti á þar til greint netfang. „Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda sem eiga að varða greiðslur eða svara tölvupóstum sem þessum. Fólki er ráðlagt að leita alltaf inn á viðurkennda síðu þess sem skilaboðin eiga að vera frá. Sektir frá lögreglu berast alltaf inn á island.is,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. Þá kemur einnig fram að telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum geti það haft samband við lögreglu og sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.
Netglæpir Tækni Lögreglumál Tengdar fréttir „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Fjöldi skráðra netbrota hjá lögreglunni fjórfaldaðist á milli áranna 2024 og 2025 og upphæð tjóna af völdum brotanna var tæplega sex hundruð milljónir króna á síðasta ári. Netöryggissérfræðingur segir hægt að nýta gervigreind á mjög slæman hátt. 9. júní 2026 21:00 Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi. 9. júní 2026 13:16 „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka. 9. júní 2026 11:14 Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikaskilaboðum sem berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa stundina í nafni umferðarlögreglunnar. Að sögn hafa aldrei borist jafnmargar tilkynningar um netsvik til lögreglu á jafnskömmum tíma og nú. 3. júní 2026 14:59 Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira
„Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Fjöldi skráðra netbrota hjá lögreglunni fjórfaldaðist á milli áranna 2024 og 2025 og upphæð tjóna af völdum brotanna var tæplega sex hundruð milljónir króna á síðasta ári. Netöryggissérfræðingur segir hægt að nýta gervigreind á mjög slæman hátt. 9. júní 2026 21:00
Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi. 9. júní 2026 13:16
„Fórnarlambið látið borga brúsann“ Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka. 9. júní 2026 11:14
Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikaskilaboðum sem berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa stundina í nafni umferðarlögreglunnar. Að sögn hafa aldrei borist jafnmargar tilkynningar um netsvik til lögreglu á jafnskömmum tíma og nú. 3. júní 2026 14:59