Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2026 19:55 Vestfirðir eru eitt helsta álagssvæðið. Verið er að stækka bílastæði við Látrabjarg, bæta salernisaðstöðu, afmarka bjargbrún, fjölga landvörðum og undirbúa umferðarstýringu og mögulegar lokanir þegar þolmörkum ákveðinna staða er náð. Getty Undirbúningi í tengslum við almyrkvann þann 12. ágúst næstkomandi miðar almennt vel og er hann á mörgum stöðum á lokametrunum.
Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins um samhæfingu undirbúnings vegna almyrkvans en minnisblaðið var lagt fram á fundi ríkisstjórnarinnar í síðustu viku. Á vef stjórnarráðsins segir að það séu sem fyrr tilmæli stjórnvalda að fólk á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu reyni að njóta þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi. Fram kemur að stýrihópur Stjórnarráðsins hafi farið í vettvangsferðir á Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanes og kynnt sér vinnuna sem þar sé í gangi. „Vestfirðir eru eitt helsta álagssvæðið. Verið er að stækka bílastæði við Látrabjarg, bæta salernisaðstöðu, afmarka bjargbrún, fjölga landvörðum og undirbúa umferðarstýringu og mögulegar lokanir þegar þolmörkum ákveðinna staða er náð. Þá verða gerðar úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg. Fjarskiptaöryggi við Látrabjarg styrkt Í minnisblaðinu kemur fram að vegurinn um Látrabjarg beri að líkindum þá umferð sem fer um hann enda mest fólksbílar og smærri rútur. Vegurinn verður einstefna í aðdraganda almyrkvans og til baka eftir hann. Vegurinn verður seinfarinn sem getur haft áhrif á viðbragðsgetu lögreglu og sjúkraflutninga. Óheimilt verður að aka stærri ökutækjum en 19+1 á Örlygshafnarvegi og Rauðasandsvegi þann 12. ágúst. Mannfjöldi helsta áskorunin á Vesturlandi Á Vesturlandi er undirbúningur kominn langt, meðal annars umferðarstýring, bílastæði, þjónusta, náttúruvernd og viðbúnaður lögreglu og heilbrigðisstofnana. Skýrar aðgerðaráætlanir liggja fyrir en gera má ráð fyrir mikilli umferð um Vesturland og álagi á Hvalfjarðargöng og Borgarfjarðarbrú. Helsta áskorunin á Vesturlandi er mannfjöldi en líklegt er að þeir Íslendingar og aðrir landsmenn sem taka ákvörðun um ferðalag með skömmum fyrirvara stefni á Vesturland frekar en Vestfirði. Á höfuðborgarsvæðinu hafa sveitarfélög gert sameiginlega aðgerðaáætlun og áhersla er á markvissa upplýsingagjöf sem geti haft áhrif á ferðamynstur og dregið úr álagi á Vesturland, Vestfirði og Reykjanes. Hvatt verður til þess að fólk njóti almyrkvans heima eða í sínu nærumhverfi. Á Reykjanesi er vinnan einnig vel á veg komin. Helstu áskoranir þar eru einkaflugvélar, drónaflug, möguleg samþjöppun fólks á vinsælum skoðunarsvæðum og álag á Reykjanesbraut. Lögregluembætti fá fjármagn vegna viðbúnaðar Í minnisblaði stýrihópsins kemur fram að lögregluembætti hafi fengið heimild til að standa straum af nauðsynlegum útgjöldum vegna viðbúnaðar. Þetta hafi dregið verulega úr óvissu um aðkomu björgunarsveita og fjármögnun verkefna. Lögregluembætti á almyrkvaslóð gera ráð fyrir töluverðum viðbúnaði og aukinni viðbragðsgetu til að stuðla að öryggi almennings, stýra og greiða fyrir umferð og lágmarka áhættu vegna slysa eða annarra ófyrirséðra atvika. Á öllum áhrifasvæðum er unnið að umferðarstýringu, viðbúnaði, upplýsingagjöf, náttúruvernd og móttöku gesta. Stýrihópurinn telur að undirbúningur sem þessi sé lykilforsenda þess að hægt verði að taka á móti miklum fjölda gesta með öruggum hætti. Samkvæmt upplýsingum frá almannvarnadeild ríkislögreglustjóra má búast við töluverðum umferðarþunga í þrjá daga fyrir atburðinn og tvo daga á eftir. Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir að vera með tvær þyrlur og tvær áhafnir til taks í Reykjavík og að þriðja áhöfnin verði tiltæk til að leysa af ef þörf krefur. Þyrlurnar verða í Reykjavík en varðskipið Freyja staðsett úti fyrir Vesturlandi auk þess sem nýir aðgerðarbátar Gæslunnar verða á Snæfellsnesi annars vegar og Suðurnesjum hins vegar til að sinna löggæslu á hafi ef á þarf að halda. Bæði Samgöngustofa og Landhelgisgæslan telja jafnframt mikilvægt að fólk kynni sér þær kröfur sem gerðar eru til farþegaflutninga á sjó og minna á að ekki er heimilt að bjóða upp á slíkt án tilskilinna leyfa. Minnt er á upplýsingagáttina um almyrkvann, island.is/almyrkvi. Hún verður uppfærð reglulega með nýjustu upplýsingum,“ segir á vef stjórnarráðsins.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Fjarskipti Vegagerð Vesturbyggð Snæfellsbær Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira