Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan Stefán Árni Pálsson skrifar 1. júlí 2026 13:02 Sigurður, Garðar og Ólafur Ólafsson fyrirliði Grindavíkur voru viðstaddir á kvikmyndahátíð í New Jersey í júní. „Ég fór í viðtal við Víkurfréttir árið 1999 þar sem ég sagðist ætla í NBA þegar ég yrði stór. Ég sá aðkomu mína að deildinni ekki alveg svona en ætli markmiðinu sé ekki nokkurn veginn náð,“ segir Garðar Örn Arnarson, leikstjóri þáttanna Grindavík.
Íþróttaheimildaþættirnir Grindavík, sem framleiddir eru af Sýn Sport, hafa verið valdir til sýningar á Summer League Film Festival, einni virtustu kvikmyndahátíð heims sem helguð er íþróttum. Hátíðin fer fram dagana 16.–18. júlí í Las Vegas samhliða NBA Summer League. Grindavík er verkefni sem hann og tökumaðurinn Sigurður Már Davíðsson leiddu. „Þetta er risastórt fyrir okkur. Við erum íþróttaheimildarmyndarmenn, að gera heimildarþætti um körfubolta. Það er ekkert stærra í körfuboltaheiminum en NBA. Þannig ég myndi segja að þetta væri risastórt fyrir okkur. Þarna erum við komnir í meistaradeildina í okkar heimi. Það að mæta þangað með heimildarþætti á íslensku tel ég bara vera gríðarlegan heiður,“ segir Garðar. Hátíðin er haldin í þriðja sinn og er samstarfsverkefni NBA, framleiðslufyrirtækis fyrrverandi NBA-meistarans Kevin Garnett, framleiðslufyrirtækis leikarans Mark Wahlberg og kvikmyndaframleiðandans Deon Taylor. Markmið hennar er að draga fram áhrif íþrótta á samfélagið og heiðra framúrskarandi heimilda- og kvikmyndagerð. Að komast í opinbert val hátíðarinnar telst því mikill heiður, enda er samkeppnin gríðarlega sterk. Meðal myndanna sem valdar voru í ár eru þrjú verk þar sem Michael Jordan er í hlutverki viðmælanda. Þá er Charles Barkley framkvæmdaframleiðandi einnar myndarinnar og leikstjóri annarrar er jafnframt einn af framleiðendum hinnar margverðlaunuðu Netflix-seríu The Last Dance um Jordan. Semkeppnishæfir við það besta „Ég sá hinar tilnefningarnar í gær og mér bara féllust hendur, erum við virkilega mættir þangað og samkeppnishæfir við þetta stöff. Það er algjörlega ótrúlegt. Það sem við höfum heyrt og lesið um þessa hátíð er að það eru allir þarna samankomnir í Bandaríkjunum sem hafa eitthvað að gera með íþróttaefni, bæði sjónvarpsstöðvarnar og efnisveiturnar. Við fáum þarna gríðarlegt tækifæri til að hitta fólk, kynnast fólki og kynna okkur og verkefnið okkar,“ segir Garðar en á hátíðinni mun einn þáttur í seríunni verða sýndur. Einnig verður sýnd heimildamyndin The Logo Men sem fjallar um Jerry West, goðsögn NBA og manninn sem varð fyrirmynd að hinu þekkta merki deildarinnar. Þetta er jafnframt önnur stóra alþjóðlega viðurkenningin sem þættirnir hljóta á skömmum tíma. Fyrr í júní voru þeir heimsfrumsýndir í Bandaríkjunum á Lighthouse International Film Festival á Long Beach Island í New Jersey. Myndirnar sem keppa við Grindavík. Þar fóru þættirnir með sigur af hólmi í flokki Best TV Series eða bestu sjónvarpsþáttaraðar hátíðarinnar. Sérstaka athygli vekur að formaður dómnefndar í þeim flokki var Ron Leshem, höfundur HBO-þáttaraðarinnar Euphoria. „Við munum sýna einn þátt úr seríunni á hátíðinni og eftir sýningu er Q&A. Þannig gestir á hátíðinni munu fá að sjá verkið okkar ásamt þeim myndum sem við keppum við. Við keppum í flokknum „Feature Documentary“ þó svo að við séum þáttasería en ekki mynd þá vorum við valdir inn í þennan flokk, sem er líka mikill heiður og ákveðinn gæðastimpill að þeir telji þetta eiga heima þarna. Okkur hefur einnig verið tilkynnt að það er mikil fjölmiðlaumfjöllun í kringum þetta. Sjónvarp, útvarp og hlaðvörp. Hátíðin stendur yfir í þrjá daga. Við förum þarna út með kassann, engar væntingar eða neitt slíkt. Heiðurinn er bara að hafa verið valinn inn. Það er sigurinn okkar í þessu.“ Summer League Film Festival veitir verðlaun í nokkrum flokkum, meðal annars fyrir bestu heimildamynd, bestu leiknu mynd, áhorfendaverðlaun, samfélagsáhrif og svokölluð Game Changer Awards, sem heiðra verk sem hafa haft sérstök áhrif á sögu og menningu körfuboltans. Í þáttunum er íbúum Grindavíkur fylgt eftir í heilt ár eftir að hörmulegar náttúruhamfarir leiða til þess að bæjarbúum er gert að flýja heimili sín. Körfuboltalið Grindavíkur varð að sameiningartákni bæjarins og leikir liðsins um leið að samverustund fyrir Grindvíkinga. Þættirnir taka á upplifun Grindvíkinga a þessu erfiða ári i gegnum körfuboltalið bæjarins en Grindavík tapaði undir lok þess tímabils í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn gegn Val.
Körfubolti Grindavík UMF Grindavík Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Sjá meira