Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Valur Páll Eiríksson skrifar 8. júlí 2026 07:02 Halldór Árnason stýrði Blikum til Íslandsmeistaratitils árið 2024 en var sagt upp undir lok síðasta tímabils. Paweł/Vísir „Af hverju heldur þú að hann taki við eftir tímabilið?“ spurði Bjarni Guðjónsson í Stúkunni og vísaði til Halldórs Árnasonar, verðandi þjálfara Vals í Bestu deild karla. Sérfræðingum þáttarins þótti fátt til frammistöðu liðsins í 1-0 tapi fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum koma.
Valur lék sinn fyrsta leik undir stjórn Englendingsins Chris Brazell um helgina. Hermann Hreiðarsson hafði verið vísað úr starfi vikuna á undan og tilkynnt að Halldór Árnason tæki við liðinu eftir yfirstandandi leiktíð. Klippa: Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Valur lék ekki vel í leiknum í Eyjum og því var velt upp hvers vegna Halldór taki ekki strax við liðinu. „Ef þetta heldur áfram svona, ætlar Dóri þá að sitja upp í stúku og stýra Val úr fjarska og leyfa þeim að fara niður í neðri hlutann? Þeir eru ekki sloppnir við fall. Þeir eru með 19 stig.“ segir Bjarni. „Jú, þeir eru nú sloppnir við fall,“ svaraði Baldur Sigurðsson í þættinum. Bjarni greip orðið aftur og ræddi áfram um Halldór og hans stöðu. „Það er þjálfari (Halldór) tekinn við liðinu og hann er pottþétt farinn í það að reyna að stýra liðinu. Það er félagsskiptagluggi að opna og annar gluggi ekki svo langt undan. Leikmenn eru að renna út á samningi og svona. Það getur enginn sagt mér að nýr þjálfari Vals sé ekki farinn að stýra liðinu, eða því sem er hægt úr fjarska,“ „Þetta var mjög dapurt og ef árangurinn er ekki betri en þetta er ég viss um að Valsmenn sitji ekki á höndum sér og leyfi liðinu að fara niður þennan veg,“ segir Bjarni. Þáttastjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson spurði þá sérfræðingana tvo hvort þeir hafi lent í því á sínum leikmannaferli að þjálfari væri ráðinn langt fram í tímann, líkt og í tilfelli Halldórs. Bæði Bjarni og Baldur svöruðu því neitandi. Bjarni bætti svo við: „Yfirleitt er ákvörðun tekin og þú þarft að stíga inn í nýtt starf strax. Það er það sem mér finnst pínu skrýtið í þessu,“ „Ég held að við séum ekki alveg búnir að sjá fyrir enda þjálfarakapals Vals á þessu tímabili,“ segir Bjarni. Umræðuna má sjá í spilaranum að ofan.
Valur Besta deild karla Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport Fleiri fréttir Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Sjá meira