Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Árni Sæberg skrifar 9. júlí 2026 12:56 Maðurinn setti sig í samband við stúlkuna í gegnum samskiptaforritið Snapchat. Vísir Karlmaður hefur verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn barni. Hann gekkst við því að hafa sent 15 ára stúlku mynd af getnaðarlim í fullri reisn auk skilaboðanna „riða i kvöld?“
Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum, með því að hafa sett sig í samband við stúlku, sem þá var 15 ára gömul, í gegnum samskiptaforritið Snapchat og viðhaft kynferðislegt tal við hana með því að senda henni mynd sem á stóð „riða i kvöld?“ og mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn. Hann hafi gengist við háttseminni en mótmælt fram kominni bótakröfu, upp á eina milljón króna, sem of hárri. Þá hafi matsmaður verið dómkvaddur til þess að framkvæma skoðun á þroska, hugarfari, hvötum og andlegu heilbrigði mannsins en einnig til þess að leggja mat á andlegt atgervi hans og andlega stöðu að öðru leyti og ákvæði hegningarlaga um ósakhæfi ættu við vegna sakargiftanna. Niðurstaða hans hafi verið að maðurinn sé sakhæfur og að refsing gæti borið árangur. Maðurinn hafi því verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundins fangelsis og greiðslu 400 þúsund króna miskabóta til handa stúlkunni. Þá greiði hann allan sakarkostnað málsins, 1,9 milljónir króna.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Samfélagsmiðlar Dómsmál Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Sjá meira