Loksins sást til hjónanna Bjarki Sigurðsson skrifar 11. júlí 2026 15:25 Þessi mynd var tekin um miðjan maí þegar Swift og Kelce voru bara trúlofuð. Neðar í fréttinni má sjá mynd af þeim eftir að þau urðu hjón. Jason Howard/Bauer-Griffin/Getty Hjónin Taylor Swift og Travis Kelce létu sjá sig í brúðkaupi fyrrverandi samherja Kelce um helgina. Þau virtust skemmta sér konunglega en ekkert hafði sést til þeirra opinberlega síðan þau gengu í það heilaga fyrir viku.
Mikil leynd hefur ríkt um giftingu söngkonunnar og NFL-kappans. Engar myndir hafa verið birtar úr athöfninni eða veislunni og gestir máttu til að mynda ekki hafa síma meðferðis. Allt var gert til að þau myndu ná að njóta dagsins utan sviðsljóssins. Það var ekki sama gæsla í brúðkaupi JuJu Smith-Schuster, leikmanns New York Giants, og Lauru Kruk sem giftu sig í gær í Kaliforníu. Þar náðu æsiljósmyndarar loksins myndum af Swift og Kelce. Swift var klædd í bleikan blómakjól og Kelce í gráleitum jakkafötum. Þau héldust í hendur meðan þau löbbuðu um svæðið og virðast hafa notið sín í botn. Í færslunni hér fyrir neðan má sjá myndir af hjónunum. View this post on Instagram A post shared by TMZ (@tmztv) Giftingarhringur Swift náðist á mynd, þó ekki mjög skýrri mynd svo aðdáendur stórstjörnunnar þurfa að bíða aðeins lengur eftir því að rýna í myndir af honum. Swift og Kelce byrjuðu að stinga saman nefjum sumarið 2023 og hefur TMZ eftir heimildum að Kelce hafi beðið föður Swift um hönd hennar í desember það sama ár. Þau hafa á engan hátt farið leynt með samband sitt, Swift mætir reglulega á leiki Kelce og hann hefur sést á nokkrum tónleikum hennar. Þá hefur Swift verið gestur í hlaðvarpi Kelce.
Hollywood NFL Ástin og lífið Bandaríkin Tónlist Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira