Haaland eldri hraunar yfir dómarana Valur Páll Eiríksson skrifar 12. júlí 2026 13:45 Alf Inge Haaland var áberandi á leikjum Noregs á mótinu og ítrekað sýndur í sjónvarpsútsendingum. James Gill - Danehouse/Getty Images Alf-Inge Haaland, faðir norsku stórstjörnunnar Erling Braut Haaland, lét dómarann Clement Turpin og samstarfsfélaga hans í 2-1 tapi Noregs fyrir Englandi á HM í gær heyra það á samfélagsmiðlum eftir leik.
Jude Bellingham var hetja enskra í leik gærkvöldsins en hann skoraði bæði mörk Englands í leiknum. Í aðdraganda fyrra marks hans virtist boltinn hæfa vír sem tengdur er við myndavél yfir vellinum. Reglubókin segir til að ef bolti hæfi slíkan vír eigi að stöðva leik og framkvæma dómarakast. Slíkt var ekki gert í aðdraganda marksins og það stóð. Norskir fótboltasérfræðingar, sem og þjálfarinn Stale Solbakken, voru allt annað en sáttir við þá niðurstöðu. Allir virðast sjá boltinn hæfa vírinn en FIFA sendi frá sér yfirlýsingu þar sem segir að skynjarar og örflaga í boltanum greini ekki snertingu. Einnig voru Norðmenn ósáttir við að mark Torbjörns Heggem hafi ekki fengið að standa en bakhrinding var dæmd á Erling Haaland í aðdraganda þess marks, snemma í síðari hálfleik. Well done Bellingham and referee.— Alfie Haaland (@alfiehaaland) July 11, 2026 Fabrizio Romano birti færslu á X þar sem Jude Bellingham er hrósað fyrir sína frammistöðu. Haaland svaraði þeirri færslu með kaldhæðnistón: „Vel gert Bellingham og dómararnir.“ Blaðamaðurinn Henry Winter birti þá færslu þar sem segir að Bellingham hafi tekið málin í sínar hendur og klárað dæmið. Við þá færslu svaraði Haaland: Really? Saved bye the referee. Hope you win the WC now. But feel we got robbed today. https://t.co/Lplf9uyOzM— Alfie Haaland (@alfiehaaland) July 12, 2026 „Í alvöru? Dómarinn bjargaði ykkur. Ég vona að það vinnið HM núna. En mér finnst við hafa verið rændir í dag.“ England mætir Argentínu í undanúrslitum mótsins á miðvikudaginn kemur en í hinni viðureigninni mætast Frakkland og Spánn, degi fyrr, á þriðjudagskvöld.
HM 2026 í fótbolta Noregur Norski boltinn FIFA Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira