Handbolti

Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael

Sindri Sverrisson skrifar
Ágúst Jóhannsson, þjálfari U20-landsliðsins, fer yfir málin með sínum mönnum.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari U20-landsliðsins, fer yfir málin með sínum mönnum. EHF

Ísland vann stórsigur gegn Ísrael, 35-23, á Evrópumótinu í handbolta karla hjá landsliðum skipuðum leikmönnum 20 ára og yngri.

Ungu strákarnir okkar spila því um 13. sæti á mótinu eftir naum töp í milliriðli og svo skell gegn Noregi í gær, þegar byrjað var að spila um 9.-16. sæti mótsins.

Það var aldrei spurning hverjir færu með sigur af hólmi í dag en Íslendingar voru með ellefu marka forskot í hálfleik, 20-9, og náðu mest sextán marka forskoti í seinni hálfleiknum.

Stefán Magni Hjartarson var markahæstur með sjö mörk úr átta skotum, Jens Bragi Bergþórsson skoraði sex úr sjö skotum, og Ingvar Dagur Gunnarsson fimm mörk úr sex skotum.

Mótinu lýkur á sunnudaginn og þá fá íslensku strákarnir sennilega tækifæri til að hefna sín á Króötum, eftir tap gegn þeim í milliriðli, en Ísland mætir sigurliðinu úr leik Króatíu og Rúmeníu sem fram fer síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×