Leikvangur með gagnsætt þak og yfir tuttugu þúsund bílastæði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 16:31 Það var mikið reynt að herma eftir ákveðnum hlutum á Arrowhead-leikvanginum þar sem Kansas City Chiefs spilar í dag. Þarna má sjá að þakið á nýja leikvanginum verður alveg gegnsætt. @chiefs NFL-félagið Kansas City Chiefs er að fara að byggja nýjan leikvang í öðru fylki og hefur nú frumsýnt myndir af væntanlegum leikvangi sem mun kosta þrjá milljarða dollara eða 378 milljarða í íslenskum krónum.
Nýi leikvangurinn verður lokaður en þakið verður úr gleri og því gegnsætt. Hann mun því geta hýst Super Bowl leiki í framtiðinni en það getur verið kalt á þessum slóðum á þeim tíma. „Frá upphafi hefur markmið okkar verið að skapa eitthvað sem bætir leikupplifun hvers einasta stuðningsmanns. Þessi nýi leikvangur mun gera nákvæmlega það. Hann er stórbrotinn. Hann heiðrar ríka arfleifð klúbbsins um leið og hann markar djarfa stefnu fyrir framtíð Chiefs,“ sagði eigandinn Clark Hunt í yfirlýsingu. Áform um að byggja nýjan leikvang voru kynnt þegar í desember. Mikilvægur þáttur fyrir félagið með nýja heimavöllinn er að hafa risastórt bílastæði í kringum leikvanginn fyrir stuðningsmenn til að hittast fyrir leiki. Bílastæðið mun þannig rúma tuttugu þúsund bíla. „Þótt við séum enn að ganga frá mörgum smáatriðum eru nokkur atriði sem við vitum fyrir víst: leikvangurinn mun rúma sjötíu þúsund áhorfendur, hann verður áfram besti staður í heimi fyrir „tailgating“ fyrir leik og öll byggingin verður hönnuð til að skapa hámarks hljóðbærni,“ sagði Hunt. Töluvert af stuðningsmönnum eru vonsviknir yfir því að yfirgefa eigi hinn goðsagnakennda Arrowhead-leikvang þar sem liðið hefur spilað síðan 1972. Áætlunin er að Chiefs haldi áfram að spila þar til 2030 áður en þeir flytja inn á nýja leikvanginn árið 2031. Arrowhead er í Missouri-fylki en nýi leikvangurinn verður í Kansas. Kansas City stendur á fylkismörkunum. Chiefs hafa notið mikillar velgengni á Arrowhead undanfarin ár með sigrum í Super Bowl árin 2020, 2023 og 2024. View this post on Instagram A post shared by Kansas City Chiefs (@chiefs)
NFL Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Valskonur fallnar í fyrsta sinn Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Browns byrjar óvænt með látum Arnar ekki lengur yfirlýsingaglaður Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Chelsea fylgist með 16 ára brasilískum varnarmanni Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu „Held ég muni pakka henni saman“ City-menn búnir að áfrýja Óðinn heim í KR Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Sjá meira