Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Eiður Þór Árnason skrifar 30. júlí 2026 09:27 Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hélt blaðamannafund í Lublin í morgun eftir að óþekktur hlutur hrapaði í Póllandi um klukkan 3:40 að staðartíma ásamt flugforingja, varnarmálaráðherra Póllands og aðstoðaryfirslökkviliðsstjóra ríkisins. EPA/KAROL ZIENKIEWICZ Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti. Atvikið sé enn til rannsóknar.
Ef rétt reynist gæti þetta talist eitt alvarlegasta rof á lofthelgi NATO-ríkis frá því að allsherjarárás Rússa á Úkraínu hófst árið 2022. The Guardian greinir frá þessu. Ekki hefur verið greint frá manntjóni eða skemmdum í Póllandi vegna flaugarinnar. Minnst átta manns létust og tugir særðust í hörðum árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Ireneusz Nowak, yfirmaður pólska flughersins, segir að Rússar hafi skotið 20 til 22 Kh-101 stýriflaugum inn í Úkraínu í nótt sem hluta af árásum sínum á landið og tvær þeirra hafi verið talin geta ógnað landsvæði Póllands. F-16 orrustuþota hafi verið send á loft til að fylgja einni stýriflauginni eftir og orðið vitni að því þegar hún hrapaði á óbyggðu svæði. Flaugin hrapaði nálægt þorpinu Tarnawa-Kolonia, um 80 kílómetrum frá landamærum Póllands og Úkraínu. Fundið brak um tvo kílómetra frá næstu byggingum Pólska lögreglan segir að lögreglumenn sem rannsökuðu tilkynningar um háan hvell hafi „fundið brak og dreifðar leifar af óþekktum hlut á akri um tvo kílómetra frá næstu byggingum.“ Atvikið átti sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti fundaði í Lublin með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Verið er að „kortleggja“ slysstaðinn og verður hann rannsakaður ítarlega, að sögn Grzegorz Trusiewicz, saksóknara í borginni Lublin í Póllandi. Hann bætir við að Úkraína hafi óskað eftir því að taka þátt í rannsókn Pólverja. Tusk boðaði til neyðarfundar Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, boðaði til neyðarfundar um atvikið með háttsettum fulltrúum hersins og neyðarþjónustunnar í morgun, að því er fram kemur í frétt Guardian. Hann staðfesti að „flaug“ hafi fallið á pólska grund og segir að „það líti út fyrir“ að það hafi verið rússnesk Kh-101 stýriflaug, líkt og Úkraína greindi frá. Hann sagði atvikið „alvarlegt“ en staðfesti að ekkert hafi verið manntjón eða skemmdir. Pólland hefði verið viðbúið að skjóta flaugina niður ef hún hefði haldið áfram flugi sínu inn á pólskt yfirráðasvæði. Skorti loftvarnarflaugar Rússar skutu 74 flaugum og 284 drónum á skotmörk í Úkraínu í nótt. Manntjón varð aðallega í Dníprópetrovsk- og Lvív-héruðum. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir þetta sýna enn og aftur að það sé mikilvægast af öllu að geta varið sig gegn loftárásum Rússa. Bætti hann við að Úkraína stæði frammi fyrir „alvarlegum skorti á loftvarnarflaugum frá samstarfsaðilum okkar.“ António Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, fordæmir árásirnar á Úkraínu og rof á lofthelgi Póllands í yfirlýsingu. „Árásargirni Rússa er ógn við öryggi Evrópu í heild sinni.“ Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að það sé „óvenjuleg tilviljun“ að atvikið hafi átt sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir fund hans með forseta Úkraínu þar sem þeir ræddu tvíhliða samstarf, þar á meðal loftvarnir. „Selenskí hafði varað mig við því að þeir hefðu nákvæmar upplýsingar um yfirvofandi stórfellda árás Rússa“ á Úkraínu, sagði Tusk. Fréttin hefur verið uppfærð.
Úkraína Pólland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu NATO Tengdar fréttir Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Þrettán eru látnir, þar af fjögur börn, í loftárásum Rússa á borgir Úkraínu í nótt. Að minnsta kosti sex létust í borginni Kryvyi Rih, þar af fimm og tólf ára stúlkur. Þá létust sex í héruðunum Dnipropetrovsk og Poltava, þar af tvö börn. Úkraínumenn hafa verið hvattir til að leita skjóls. 30. júlí 2026 07:21 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Fleiri fréttir Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Sjá meira
Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Þrettán eru látnir, þar af fjögur börn, í loftárásum Rússa á borgir Úkraínu í nótt. Að minnsta kosti sex létust í borginni Kryvyi Rih, þar af fimm og tólf ára stúlkur. Þá létust sex í héruðunum Dnipropetrovsk og Poltava, þar af tvö börn. Úkraínumenn hafa verið hvattir til að leita skjóls. 30. júlí 2026 07:21