Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 13:01 Neytendastofa var ekki sátt með skilti Parka og miða EasyPark. Samsett Neytendastofa hefur sektað bílastæðafyrirtækin Parka Lausnir ehf. og EasyPark Ísland ehf. um hundruð þúsunda fyrir að tilgreina ekki kostnað á gjaldsvæðum nægilega vel.
Neytendastofa ákvað að ráðast í úttekt á upplýsingagjöf og viðskiptaháttum fyrirtækja sem sinna gjaldheimtu fyrir bílastæði innan og utan höfuðborgarsvæðisins. Stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að bæði fyrirtækin hafi brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu auk reglna sem stofnunin hefur eftirlit með. Sekt Parka Lausna ehf., alla jafna kallað Parka, var ein milljón króna fyrir brotin. Neytendastofa taldi að þeir sem nýttu sér þjónustu Parka á bílastæðum um land allt fengju ekki nægilega skýrar og aðgengilegar upplýsingar áður en þeir lögðu bílunum sínum. Helstu annmarkarnir voru skortur á upplýsingum um þjónustugjöld, óskýrar upplýsingar um vangreiðslugjöld, ófullnægjandi merkingar hvað varðaði gjaldsvæðið, vöntun á verðskrá og jafnvel misvísandi upplýsingar um verð eða greiðsluskilmála. Til að mynda voru rangar upplýsingar um gildistíma viðveru á bílastæðum við Múlagljúfur og Fjallsjökul auk þess sem veittar voru rangar upplýsingar um gjaldskyldu á bílastæði við Hótel Arnarstapa. Þá var verðskráin ekki nægilega áberandi á bílastæðum að Eyvindarholti, Laufásgötu 4, Reynisfjöru, Skaftafelli og Stuðlagili við Grund. Í úrskurði Neytendastofu koma fram svör Parka þar sem segir að þau hafi þegar uppfært og lagað upplýsingar á þó nokkrum skiltum en á meðan sú vinna fór fram hafi þau ekki innheimt vangreiðslugjöld á þeim stöðum sem þær upplýsingar vantaði. Einnig hafi þau hannað ný skilti til að gera upplýsingarnar skýrari. Ekki nægar upplýsingar á miðum EasyPark EasyPark Ísland ehf. var gert að greiða fimm hundruð þúsund króna sekt fyrir brot sem fólust í því að kostnaður við notkun greiðslulausnar þeirra var ekki tilgreindur á gjaldsvæðunum. Þann 5. júní 2025 komst Neytendastofnun að þeirri niðurstöðu að EasyPark hefði brotið lög með því að birta ekki upplýsingar um kostnað við notkun smáforrits félagsins á miðum sem voru á greiðsluvélum Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Var félaginu bannað að viðhafa þá viðskiptahætti og þeim fyrirmælum beint til félaginu að koma miðum með verðupplýsingum á greiðsluvélarnar. Neytendastofa athugaði aftur greiðsluvélarnar og var ekki búið að setja miða með fjárhæð gjaldsins fyrir notkun greiðslulausnarinnar. Búið var að skipta út eldri miðunum fyrir nýja en á þeim stóð einungis að færslugjald gæti lagst ofan á viðverugjaldið. EasyPark sagði í svörum sínum til Neytendastofu að fyrirtækið teldi að það ekki raunhæft að koma upplýsingum um endanlegt verð á litla auglýsingamiða. Þá sé verðskráin breytileg eftir áskrift neytandans og frá hvaða landi hann er. Neytendastofa taldi hins vegar að flókin verðskrá geti ekki „leyst fyrirtæki undan þeirri skyldu að birta upplýsingar sem telja megi að skipti neytendur máli við ákvörðun þeirra um að eiga viðskipti við félagið“.
Bílastæði Neytendur Bílar Stuðlagil Reynisfjara Vatnajökulsþjóðgarður Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Sjá meira