Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Aron Guðmundsson skrifar 4. ágúst 2026 12:02 Gunnar Róbertsson í leik með Val hér heima. Vísir/Anton Brink Gunnar Róbertsson, einn af máttarstólpum hins frábæra undir átján ára landsliðs Íslands í handbolta, hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frábær tilþrif í leik liðsins gegn Unverjalandi á EM undir átján ára landsliða á dögunum.
Íslenska landsliðið hefur staðið sig frábærlega á mótinu til þessa og hefur nú þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum þrátt fyrir að eiga einn leik eftir í milliriðli. Strákarnir okkar unnu alla leiki sína í riðlakeppninni gegn Svartfjallalandi, Ungverjalandi og Sviss og sigurgangan hélt svo áfram gegn Króötum í milliriðli í gær. Seinna í dag mætir Ísland landsliði Portúgal í seinni leik sínum í milliriðli. Gunnar Róbertsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Vals sýndi frábæra takta í leik liðsins gegn Ungverjalandi í riðlakeppninni þegar að hann skoraði tvö mörk á aðeins nokkrum sekúndum. Fyrra markið kom eftir laglega sókn Íslands þar sem að Gunnar prjónaði sig í gegnum ungversku vörnina og stuttu seinna stal hann boltanum er Ungverjar hófu næstu sókn og skoraði aftur í kjölfarið. Alls skoraði Gunnar tólf mörk í umræddum leik. Some players just don’t switch off. 😮💨 #ehfeuro2026 #handball #followthefuture @HSI_Iceland pic.twitter.com/vdxaaV5fyG— EHF EURO (@EHFEURO) August 4, 2026 Evrópska handknattleikssambandið deilir myndskeiði af tilþrifum Gunnars á samfélagsmiðlum sínum og segir í færslunni: „sumir leikmenn slökkva aldrei á sér.“ Gunnar á ekki langt að sækja hæfileikana í handboltanum. Faðir hans er fyrrverandi landsliðsmaðurinn og silfurstrákurinn Róbert Gunnarsson. Móðir Gunnars er Svala Sigurðardóttir.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Handbolti Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira