Æfir blindandi og skýtur á eigandann Valur Páll Eiríksson skrifar 5. ágúst 2026 08:33 CeeDee Lamb vakti athygli með net á hausnum á æfingu. Jayne Kamin-Oncea/Getty Images Einstök ný æfingaaðferð útherjans Ceedee Lamb, sem leikur fyrir Dallas Cowboys í NFL-deildinni, hefur vakið athygli. Hann segist þurfa að geta gripið boltann blindandi.
Margur velti fyrir sér hvað lægi fyrir Lamb þegar myndskeið birtist af honum æfandi með þykkt flugnanet yfir hausnum. Hvort hræðsla við flugnabit eða annað slíkt olli áhugaverðri aðferð. CeeDee Lamb: “I gotta practice catching without seeing the ball. My owner refuses to fix the issue with the sunlight coming into the stadium so I gotta adapt.” pic.twitter.com/eJObkUfO22— Jeremy Beadling (@JeremyChuggs) August 4, 2026 Yahoo greinir frá því að ástæðan sé eiganda Cowboys-liðsins, Jerry Jones, ekki endilega að skapi. „Ég verð að æfa mig í að grípa boltann án þess að sjá hann. Eigandinn minn neitar að laga vandamálið með sólarljósið sem kemur inn á völlinn, svo ég verð að aðlagast,“ er haft eftir Lamb. Þar er vísað til atviks þar sem Lamb mistókst að grípa stutta þriggja stiku langa sendingu í endamarkinu í leik við Philadelphia Eagles vegna sólarljóss sem truflaði sýn hans á heimavelli Cowboys, AT&T-vellinum í Dallas. Jerry Jones, eigandi Dallas Cowboys, er skrautlegur fír. Hann tók ummælum Lamb af léttúð árið 2024.Getty/Tom Pennington Lamb hefur áður nefnt sólarljós á vellinum sem hafi truflandi áhrif við ákveðnar birtuaðstæður. Jones vísaði gagnrýni útherjans til föðurhúsanna á sínum tíma, árið 2024. „Við vitum hvar fjárans sólin verður á okkar eigin leikvangi. Jæja, við skulum bara rífa þennan bölvaða leikvang og byggja annan? Ertu að grínast í mér?“ sagði Jones og bætti við: „Sömu aðstæður eiga við um alla. Öll lið sem koma hingað eru með sömu vandamálin. Þau vita hvar sólin verður. Öll lið glíma við það sama.“ Lamb hefur verið meðal öflugri útherja deildarinnar undanfarin ár en öll lið í NFL-deildinni eru komin á fullt í undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil sem hefst eftir um mánuð. NFL-deildinni verður að venju fylgt eftir með beinum útsendingum sem og í vikulegum þætti af Lokasókninni í allan vetur á Sýn Sport.
NFL Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira