Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. ágúst 2026 11:13 Brad Pitt er ekki lengur edrú. EPA Hollywood-stjarnan Brad Pitt segist byrjaður að drekka áfengi á ný eftir að hafa verið edrú síðustu sjö ár. Hann nýtti sér tólf spora kerfið í kjölfar skilnaðar við leikkonuna Angelinu Jolie fyrir um tíu árum og hefur reglulega talað opinberlega um edrúmennskuna. Hann reyni að gæta hófs í drykkjunni.
Brad Pitt var í stóru viðtali hjá tímaritinu Esquire sem birtist á mánudaginn og ræddi þar um nýjustu kvikmynd sína, Heart of the Beast, og feril sinn til þessa. Í viðtalinu kemur fram að Pitt hafi boðið blaðamanni Esquire vínglas sem spurði á móti hvort vínið væri bara fyrir gesti. Pitt greindi þá frá því að hann væri byrjaður að drekka aftur „í hófi“. „Ég var edrú í sjö ár. Svo fór ég aftur af vagninum,“ sagði Pitt í viðtalinu. „Ég varð aðeins of borubrattur nokkru sinnum, sagði: „Já, nei, þetta er ekki gott fyrir mig.“ Ekki í stórum skömmtum,“ sagði leikarinn. Hann var síðan spurður hvort þetta þýddi að hann gæti fengið sér vínglas og svaraði Pitt þá: „Já. Tja... ég get fengið mér nokkur. En ég get ekki fengið mér mörg. Ég þarf að passa mig með það.“ Sagður hafa verið ölvaður í flugferðinni afdrifaríku Brad Pitt hætti að drekka eftir að hann skildi við Angelinu Jolie árið 2016. Jolie sótti um skilnað nokkrum dögum eftir að þau lentu í orðaskaki um borð í einkaþotu á leið frá Frakklandi til Bandaríkjanna. Ekki er ljóst hvað fór nákvæmlega fram þar en sagan segir að Pitt hafi verið ölvaður og hreytt fúkyrðum í bæði Jolie og börnin þeirra sex. Hatrömmu skilnaðarferli Jolie og Pitt lauk ekki fyrr en árið 2024 eftir að þau höfðu deilt um hvernig skipta ætti eignum. Á sama tíma virðast flestöll börn þeirra hafa fjarlægst föður sinn og mörg hver ákveðið að losa sig við Pitt-nafnið. Pitt hefur talað mikið um edrúmennsku sína í gegnum tíðina og sagði í viðtali árið 2017 að ári fyrr hefði hann misst sig í drykkjunni. Í þakkarræðu eftir að hafa unnið til verðlauna fyrir besta leik í aukahlutverki árið 2020 þá þakkaði Pitt leikaranum Bradley Cooper sérstaklega fyrir edrúmennskuna. „Ég varð edrú út af þessum gaur og hver dagur hefur verið betri síðan,“ sagði Pitt um Cooper sem færði honum verðlaunin.
Hollywood Bandaríkin Áfengi Bíó og sjónvarp Skilnaður Angelinu Jolie og Brad Pitt Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira