Handbolti

Kallar eftir nafla­skoðun í norskum hand­bolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Noregur verður ekki meðal þátttökuliða á HM U-19 ára á næsta ári.
Noregur verður ekki meðal þátttökuliða á HM U-19 ára á næsta ári.

Hæfileikastjóri yngri landsliða karla hjá norska handknattleikssambandinu, Claus Dalgaard-Hansen, segir að Norðmenn verði að horfa inn á við eftir að U-19 ára landsliði karla mistókst að komast á heimsmeistaramótið á næsta ári. Dalgard-Hansen segir að Norðmenn séu að missa sterkustu handboltaþjóðir heims of langt fram úr sér.

Dalgaard-Hansen skrifaði pistil á heimasíðu norska handknattleikssambandsins eftir að U-19 ára landsliði karla tókst ekki að tryggja sér sæti á HM á næsta ári.

Dalgaard-Hansen segir að þjálfarateymi U-19 ára liðsins hafi fengið leyfi til að beita öllum þeim taktísku úrræðum sem í boði voru til að tryggja HM-sætið. 

„Áður höfum við, til að leggja enn meiri áherslu á einstaklingshæfni leikmanna og þróun leikmanna, sem spila á báðum endum vallarins, valið að nota ekki varnar-/sóknarskiptingar og sjö á sex leik svona snemma í þroskaferlinu,“ skrifar Dalgaard-Hansen.

Hann segir að leikir U-19 ára liðsins síðasta eina og hálfa árið hafi sýnt að beita hefði þurft öllum þeim ráðum sem í boði voru til að komast inn á HM og skerpa áherslurnar í árganginum meira en æskilegt þyki.

„Samt var það ekki nóg. Þrátt fyrir að leikmenn, þjálfarar og stjórnendur hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð, verðum við að viðurkenna að við verðum ekki með á HM næsta sumar,“ skrifar Dalgaard-Hansen.

Hann bætir við að Norðmenn verði að líta í eigin barm og athuga hvað þeir geti gert til að missa ekki enn fleiri þjóðir fram úr sér.

„Við verðum að viðurkenna að bilið í fremstu þjóðirnar hefur aukist. Á sama tíma eru fleiri lönd, í raun hópur landa sem áður voru á eftir okkur, sem hafa náð okkur eða farið fram úr okkur,“ skrifar Dalgaard-Hansen og bætir við að fjöldi iðkenda og fjöldi æfinga sé ekki vandamálið.

„Æfa leikmennirnir í hinum löndunum meira en við? Nei, í nokkrum tilfellum æfa þeir í raun minna. Eru fleiri leikmenn í hinum löndunum en hjá okkur? Nei, það á aðeins við um Þýskaland og Frakkland. Við höfum jafn marga leikmenn og Danmörk,“ skrifar Dalgaard-Hansen.

„Við verðum því að skoða þróunarkerfið okkar nánar. Við verðum að skoða daglegan veruleika leikmannanna, þjálfunina og leikjaframboðið sem þeir fá. Saman verðum við að auka gæðin.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×