Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Kjartan Kjartansson skrifar 13. ágúst 2026 10:04 Heidi Beirich er sérfræðingur í öfgahægrihreyfingum og hefur helgað líf sitt baráttu gegn Kúx Klúx Klan og nýnasistum. Bandaríkjastjórn sækir hana nú til saka fyrir þau störf. AP/Mary Altaffer Bandaríska alríkisstjórn handtók og ákærði sérfræðing í öfgahægrihreyfingum. Ákæran tengist því að konan tók þátt í að vakta og afhjúpa nýnasista og Kú Klúx Klan-liða á laun.
Ákæran á hendur Heidi Beirich, stjórnmálafræðingi sem sérhæfir sig í öfgahægrihreyfingum, er liður í herferð bandaríska dómsmálaráðuneytisins gegn mannréttindasamtökunum Southern Poverty Law Center (SPLC). Samtökin eru þekkt fyrir baráttu sína gegn kynþáttahöturum og öfgamönnum í gömlu Suðurríkjum Bandaríkjanna. Þau hafa meðal annars verið alríkislögreglunni innan handar í þeirri baráttu. Repúblikanaflokkur Donalds Trump forseta hefur lengi haft horn í síðu samtakanna vegna árlegrar skýrslu sem þau hafa gefið út um haturssamtök og telur að honum vegið. Rannsókn ráðuneytisins á samtökunum beinist að leynilegum greiðslum þeirra til uppljóstrara innan öfgahópa. Það sakar samtökin um að hafa framið fjársvik með því að halda greiðslunum leyndum fyrir þeim sem létu fé af hendi rakna til þeirra. Beirich er þannig ákærð fyrir fjársvik og peningaþvætti vegna um fjögurra milljóna dollara sem samtökin veittu til uppljóstrara og heimildarmanna á árinu 2007 til 2023. Lögmaður Beirich segir hana blásaklausa af ákærunni og að máli gegn henni eigi sér pólitískar rætur. „Hún hefur helgað líf sitt baráttunni gegn KK, nýnasistahópum og öfgamönnum. Við erum öll öruggari fyrir tilstilli starfa hennar. [...] Það er ekki bara kaldhæðnislegt heldur hræðilegt að núverandi dómsmálaráðuneyti hafi ákært hana fyrir þessa vinnu hennar,“ sagði Michael Proctor, lögmaður Beirich, eftir að hún kom fyrir dómara í Kaliforníu í gær.
Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Kynþáttafordómar Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira