Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2026 18:31 Gianni Infantino hefur enn fylgi hjá nokkrum álfusamböndum innan FIFA og það gæti þurft nýtt framboð og kosningu til að koma honum í burtu. AP/Manu Fernandez Forseti knattspyrnusambands Afríku hefur varað fótboltaheiminn við því að þrátt fyrir mikla pressu úr öllum áttum á forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins þá verði aðeins hægt að koma Gianni Infantino frá völdum með atkvæðagreiðslu.
Framtíð Gianni Infantino sem forseta á að vera í höndum 211 aðildarlanda Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) í kosningum í mars. Þetta segir Patrice Motsepe, forseti Knattspyrnusambands Afríku (CAF), sem styður Infantino áfram. „Ef einhver á í vandræðum með einhvern, hvort sem það er Gianni eða einhver annar, þá skal fylgja ferlinu. Fylgja ferli FIFA, svo einfalt er það,“ sagði Motsepe samkvæmt Sky News. Infantino berst fyrir því að halda starfi sínu eftir harða gagnrýni vegna áætlunar um að selja hluta af HM og öðrum mótum FIFA til einkafjárfesta. Á meðan Knattspyrnusamband Afríku styður Infantino hefur Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) misst traust á forsetanum. Sama gildir um knattspyrnusambönd Norður- og Mið-Ameríku og Karíbahafsins (CONCACAF) og Knattspyrnusamband Asíu (AFC). Þetta má túlka sem svo að þau vilji að Infantino stígi til hliðar áður en hann fær tækifæri til að bjóða sig fram aftur í mars á næsta ári. Motsepe var spurður út í þetta og varaforseti FIFA telur að framtíð Infantino eigi eingöngu að ráðast við kjörborðið. „Ef þið viljið koma honum frá, þá farið í kosningar. Látið aðildarsamböndin 211 ákveða. Gerið það og atkvæðagreiðslan mun sýna hvort traust er borið til hans eða ekki,“ sagði Motsepe. Hann var viðstaddur úrslitaleik Ofurbikarsins í Salzburg í Austurríki á miðvikudagskvöld og ræddi þar við Aleksander Ceferin, forseta UEFA, um Infantino. FIFA heldur forsetakosningar á fjögurra ára fresti. Árin 2019 og 2023 var Infantino kjörinn án mótframboðs. Hugsanlegur keppinautur verður að tilkynna framboð sitt fyrir 18. nóvember. Samkvæmt reglum FIFA þarf 106 atkvæði til að vinna kosningarnar á þingi í Marokkó þann 17. mars.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira