Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar 18. ágúst 2026 07:16 Undanfarnar vikur hefur Reykjavíkurborg kynnt skipulagsbreytingar undir formerkjum hagræðingar og sparnaðar. Sveitarfélög þurfa eðlilega, eins og önnur fyrirtæki og stofnanir, að endurskoða rekstur sinn reglulega og leita leiða til að nýta skattfé af ábyrgð. En um leið þarf að spyrja hvort ákvarðanirnar byggist á heildstæðu mati eða hvort verið sé að horfa of þröngt á einn kostnaðarlið. Í umræðunni um opinberan rekstur virðist launakostnaðurinn nær alltaf vera í brennidepli. Hann er sýnilegur í ársreikningum og auðmælanlegur. En segir það alla söguna? Þegar fólki er sagt upp hverfa verkefnin sjaldnast með því. Þjónustan þarf áfram að vera til staðar og þá vaknar spurningin hvort kostnaðurinn flytjist einfaldlega annað. Hvað kostar það árlega, fyrir ríkið og sveitarfélög, að kaupa þjónustu sem þau sinntu áður sjálf? Hversu stór hluti skattfjár fer í aðkeypta þjónustu vegna þess að opinberir aðilar telja sig ekki lengur hafa bolmagn eða getu til að sinna henni? Þetta eru mikilvægar spurningar sem hafa ekki fengið þá umræðu sem þær verðskulda. Með útvistun verkefna eru sveitarfélög og ríkið að koma sér fram hjá ábyrgð og skyldum sem kjarasamningar á opinberum vinnumarkaði tryggja. Einkafyrirtæki starfa með hagnað að markmiði. Auk þjónustunnar sjálfrar þarf að standa undir rekstrarkostnaði, stjórnun, áhættu og arðsemi eigenda. Það getur vel verið að útvistun sé fjárhagslega hagkvæm í ákveðnum verkefnum en það verður að sýna fram á það með heildstæðri greiningu. Ekki aðeins með því að bera saman launalið sveitarfélagsins fyrir og eftir breytingar því lægri launakostnaður leiðir ekki sjálfkrafa til lægri heildarkostnaðar. En kostnaður er ekki eina viðmiðið. Þegar grunnþjónusta við börn, aldraða eða aðra viðkvæma hópa færist í auknum mæli til einkaaðila breytist líka ábyrgðin. Hver ber ábyrgð þegar eitthvað fer úrskeiðis? Hver ber pólitíska ábyrgð þegar þjónustan stenst ekki væntingar? Sagan sýnir að óskýr ábyrgð getur haft alvarlegar afleiðingar, Bakkakotsmálið er skýrt dæmi um það. Því þarf að spyrja hvort núverandi fyrirkomulag við útvistun verkefna tryggi nægilega skýra ábyrgð? Í lögum um opinber innkaup er keðjuábyrgð ætlað að koma í veg fyrir að ábyrgð á launum og starfskjörum glatist í keðju aðal- og undirverktaka. Ætti ekki sama hugsun að eiga við þegar um er að ræða grunnþjónustu sem hefur bein áhrif á líf fólks? Það hlýtur að vera eðlileg krafa að opinber aðili sem ákveður að færa verkefni út fyrir opinberan rekstur beri áfram skýra ábyrgð á gæðum, öryggi og kostnaði þjónustunnar. Vel rekið sveitarfélag er ekki endilega það sveitarfélag sem nær lægsta launakostnaði á Excel-skjali. Gott sveitarfélag er það sem tryggir góða þjónustu, notar skattfé af ábyrgð og getur sýnt fram á að heildarniðurstaðan sé samfélaginu til hagsbóta bæði fjárhagslega og faglega. Áður en fleiri störf hverfa úr opinberri þjónustu eigum við að spyrja einfaldrar spurningar: Er raunverulega verið að spara eða er verið að færa kostnaðinn og ábyrgðina annað? Meirihlutinn í Reykjavík hefur talað skýrt um að skerða ekki grunnþjónustu við íbúa, bæði í aðdraganda kosninga og þegar hann tók við. Geta þau staðið við þetta loforð? Í viðtali við Morgunblaðið þann 12. ágúst sl. segir Hildur Björnsdóttir meðal annars að það gangi ekki í neinum rekstri að bjóða bestu þjónustuna fyrir lægstu tekjuhópana en þá verstu fyrir hæstu hópana. „Slíkur rekstur verður aldrei sjálfbær.“ Má lesa úr orðum borgarstjóra að aðgangur að grunnþjónustu borgarinnar eigi í auknum mæli að ráðast af efnahag fólks í nafni betri reksturs. Það eru ískyggileg skilaboð inn í haustið þegar forsendur kjarasamninga eru brostnar að sá hópur sem hefur mest fundið fyrir verðbólgunni muni færast aftast í röðina í nafni betri rekstrar. Þá á ekki bara að fækka starfsfólki og útvista verkefnum án skýrs ramma heldur á líka að skoða þjónustu við þá sem minnst mega sín. Það eru ekki bara snemmbúnar haustlægðir sem láta okkur vita að vetur nálgast. Orð borgarstjóra eru skýr merki um að stormasamur tími sé fram undan. Höfundur er formaður Sameykis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rekstur hins opinbera Kári Sigurðsson Reykjavík Kjaramál Borgarstjórn Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar