Neytendur

Ís­lendingar aldrei eytt eins miklu er­lendis

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Kortavelta Íslendinga erlendis komi bæði frá kortum sem notuð eru á ferðalögum erlendis en einnig í erlendum netverslunum.
Kortavelta Íslendinga erlendis komi bæði frá kortum sem notuð eru á ferðalögum erlendis en einnig í erlendum netverslunum. Getty

Kortavelta Íslendinga jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu minna innanlands en aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu landsmanna farið fram erlendis. 

Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Greiðslukortavelta landsmanna hafi verið 1,4 prósentum meiri í júlí í ár en í fyrra en kortavelta erlendis jókst um 8,5 prósent á föstu gengi en dróst saman um tæpt eitt prósent innanlands að raunvirði milli ára. 

Í júlí hafi ríflega fjórðungur neyslu Íslendinga farið fram erlendis og hafi hún aldrei mælst hærri. Frá áramótum hafi að jafnaði mælst um 14 prósenta aukning á mánaðarlegri kortaveltu Íslendinga erlendis á milli ára, að teknu tilliti til gengis.

Aftur á móti hafi utanlandsferðum landsmanna fækkað um tíu prósent það sem af er ári. Kortavelta Íslendinga erlendis komi bæði frá kortum sem notuð eru á ferðalögum erlendis en einnig í erlendum netverslunum. Gögnin bendi því til þess að Íslendingar nýti erlendar netverslanir í sífellt meira mæli. 

Ferðamenn hérlendis voru rúmlega þremur prósentum færri en í júlí í fyrra. Þrátt fyrir það hafi erlend kortavelta innanlands aukist um tæp fjögur prósent og því aukist lítillega á hvern ferðamann. 

Munur á kortaveltu Íslendinga erlendis og ferðamanna hér á landi hafi verið jákvæður um 13,6 milljarða í júlí sem sé tæplega milljarði minni afgangur en í fyrra. Hann skýrist af aukinni kortaveltu landsmanna erlendis. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×