Baunað á Jónas Má þvert á flokka Árni Sæberg skrifar 21. ágúst 2026 14:58 Jónas Már Torfason, til vinstri, og Orri Vignir Hlöðversson, sem er einn þeirra bæjarráðsfulltrúa sem baunuðu á Jónas Má. Vísir/Vilhelm Bókað var í gríð og erg á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær, þegar bæjarfulltrúar allra flokka nema Samfylkingar sökuðu Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingar, um að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins.
Í fundargerð fundar bæjarráðs í gær segir að ný reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins hafi verið rædd og starfsfólk Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi flutt kynningu um málið fyrir bæjarráð. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega eftir að reglugerðin var sett og sakað hana um að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 2025. „Með nýrri reglugerð hefur ríkið hins vegar einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið. Settar eru kerfislegar skorður sem útiloka börn frá aðgengi í viðeigandi úrræði þar sem ríkið stendur straum af kostnaði, þrátt fyrir mat sérfræðinga um þörf þeirra fyrir fjölþætta þjónustu,“ sagði í fréttatilkynnigu frá sambandinu í júní. Staðfesti áhyggjur Í fundargerðinni segir að þau Ásdís Kristjánsdóttir, Andri Steinn Hilmarsson, og Hjördís Ýr Johnson, Sjálfstæðisflokki, Orri Vignir Hlöðversson, Framsókn, María Ellens Steingrímsdóttir, Viðreisn, og Einar Jóhannes Guðnason, Miðflokki, hafi bókað á fundinum að þau þakki starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir greinargóða kynningu. Kynningin staðfesti þær áhyggjur sem áður hafi komið fram í bæjarráði Kópavogs. Með reglugerðinni hafi ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem falla undir úrræði ríkisins, þvert á samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um að ríkið tæki yfir málaflokkinn að fullu leyti. Alvarlegast í þessu öllu sé að börnum, með fjölþættan vanda, sem áður fengust framlög með hafi nú verið hafnað. Þá hafi ráðuneytið staðfest að afmörkun reglugerðarinnar útiloki börn með þyngri og langvinnari þjónustuþarfir. „Undirrituð telja þetta óásættanlegt og til þess fallið að grafa undan trausti sveitarfélaga í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Skorað er á ráðuneytið að standa við þá ábyrgð og skuldbindingar sem samið var um og tryggja að börn með hvað mestar og flóknastar stuðningsþarfir falli ekki milli kerfa.“ Getur ekki tekið undir með meirihlutanum Þá bókaði Jónas Már og þakkaði sömuleiðis fyrir greinargóða kynningu og uppbyggilegt samtal. „Hins vegar getur undirritaður ekki tekið undir bókun meirihlutans, sem þriðja bæjarráðsfundinn í röð dregur fram mál þetta til umfjöllunar. Fyrir liggur að ríkisstjórnin stígur inn í málaflokkinn með rúmlega þriggja milljarða króna framlag sem ekki var til skiptanna fyrir gerð samkomulagsins og án þess að frekari skyldur falli á sveitarfélögin aðrar en þær sem þegar voru við lýði við gerð samkomulagsins. Skýrt er kveðið á um þessa fjárhagslegu aðkomu ríkisins í samkomulaginu og við hana hefur verið staðið.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé stórt skref í átt að varanlegri lausn í málaflokki sem hafi verið bitbein í meira en áratug. Samkomulagið kveði á um heildarendurskoðun málaflokksins sem standi enn yfir og starfshópur á vegum ríkis og sveitarfélaga sé að störfum, líkt og kveðið sé á um í samkomulaginu. Það liggi fyrir að reglugerðin sem um ræðir sé í virkri endurskoðun og að það sé vilji hjá ríkisstjórn til að styrkja áfram þjónustu við skjólstæðinga kerfisins og leiða þetta mál í jörð með sanngjarnri og eðlilegri skiptingu ábyrgðar milli ríkis og sveitarfélaga. „Pólitísk upphlaup eru ógagnleg innlegg inn í það samtal, líkt og undirritaður hefur áður bókað um á síðustu tveimur bæjarráðsfundum.“ Taki stöðu með ríkinu Í annarri bókun allra annarra bæjarráðsmanna segir að Jónas Már hafi með bókun sinni tekið stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins. Í samkomulaginu frá 19. mars 2025 segi eftirfarandi: „Ríkið tekur að sér framkvæmd og ber ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimils, og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi, eigi síðar en 1. janúar 2026.“ Þarna sé í senn hvoru tveggja fjallað um framkvæmdina og fjármögnunina. „Að kalla gagnrýni allra bæjarráðsmanna, bæði í meiri- og minnihluta, fyrir utan fulltrúa Samfylkingarinnar, á stöðuna „pólitískt upphlaup“ stenst ekki skoðun. Það liggur fyrir að ríkið er ekki að standa við gerða samninga, bæði hvað varðar fjármögnun og framkvæmd, með því að setja ný og þrengri skilyrði en fólust í téðu samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um málaflokkinn.“ Í takti við vanstillta nálgun meirihlutans Í annarri bókun segir Jónas Már að ummæli meirihlutans um að hann dragi taum ríkisins fram yfir hag bæjarins dæmi sig sjálf og séu í takti við annars vanstillta nálgun meirihlutans í málinu.Kópavogsbær hafi enga höfnun fengið á grundvelli nýrrar reglugerðar. Reglugerðin hafi verið sett svo hægt væri að byrja að vinna eftir uppleggi samkomulagsins, þar sem ríkið leggi til ríflega þrjá milljarða í málaflokkinn án þess að sveitarfélögin taki á sig auknar skyldur. Við setningu reglugerðarinnar hafi legið fyrir að hún yrði áfram í endurskoðun og framkvæmd hennar vöktuð. Í samkomulaginu sé kveðið á um að það sé háð heildarendurskoðun á flóknu regluverki sem er í vinnslu. Af ummælum meirihlutans að dæma mætti ætla að hann kysi frekar að beðið hefði verið með nokkra aðkomu ríkisins, en á meðan hefðu sveitarfélögin áfram borið fulla ábyrgð á málaflokknum. „Undirrituðum er ekki kunnugt um að bæjarráð hafi áður ályktað um algjört aðgerðarleysi síðustu ríkisstjórna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í málaflokknum, en hann telur það mikilvægt framfaraskref að núverandi ríkisstjórn komi að borðinu. Til þess að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga þurfa báðir aðilar að leggja sig fram við yfirvegað samtal. Það er ekki í hag íbúa Kópavogsbæjar að bærinn rýri trúverðugleika sinn í því samtali með ótímabærum upphrópunum.“ Sérstakt orðalag Í þriðju og síðustu bókun hinna bæjarráðsmannanna segir að það skuli áréttað að fulltrúar fjögurra af fimm flokkum, úr meiri- og minnihluta, standi að fyrri bókunum. Þetta sé Jónasi Má vel kunnugt og í því ljósi sé orðavalið sérstakt og til þess fallið að villa um fyrir þeim sem lesa bókanir frá fundinum. „Það sem liggur fyrir er að ríkið ákveður einhliða að setja nýja reglugerð, sem felur í sér ný og þrengri skilyrði, án aðkomu eða samþykkis sveitarfélaganna þrátt fyrir að annað hafi verið undirritað. Að mati undirritaðra er ekki um að ræða flokkapólitík heldur hagsmuni barna, fjölskyldna þeirra og sveitarfélaganna í landinu.“ Loks bókar Jónas Már eftirfarandi: „Afstöðum undirritaðs og meirihlutans hafa verið gerð skýr skil í bókunum þessa fundar, sem og síðustu tveggja bæjarráðsfunda, þar sem meirihlutinn hefur dregið þetta mál fram til þess að bóka um það. Vísa ég til fyrri bókanna og tel ekki ástæðu til frekari málalenginga um þetta mál.“
Kópavogur Sveitarstjórnarmál Málefni fatlaðs fólks Börn og uppeldi Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Fleiri fréttir Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið Sjá meira