Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Áróra L Davíðsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 22. ágúst 2026 10:57 Hildur ítrekar að Menningarnótt sé fjölskylduhátíð og hvetur fjölskyldur til að koma saman niður í bæ, njóta samveru í miðborginni og fara svo saman heim að lokinni flugeldasýningu. Vísir/Lýður Valberg Borgarstjóri hvetur íbúa borgarinnar til að mæta í miðborgina og njóta samveru og láta veðrið ekki á sig fá enda sé nóg um að vera.
Ég hvet bara íbúa til að mæta niður í miðborgina og njóta dagsins og láta alls ekki verðið á sig fá. Það er ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Nóg sé um að vera í miðborginni en íbúar, atvinnurekendur og listafólk stendur að um fjögur hundruð viðburðum og teygir hátíðarsvæðið sig frá Lönguhlíð í Austurbæ, Hagatorgi í Vesturbæ og út á Granda. Hildur setur hátíðina formlega klukkan 12:30 hjá DJ Margeiri á Klappastíg og boðið verður upp á afmælisköku í tilefni 240 ára afmæli höfuðborgarinnar. Sjá einnig: Svona verður dagskráin á Menningarnótt Hildur hvetur fjölskyldur til að koma saman niður í bæ, enda sé Menningarnótt fjölskylduhátíð. „Við undirstrikum auðvitað að Menningarnótt er fjölskylduhátíð og við hvetjum fjölskyldur til að koma saman niðri í bæ, njóta samveru í miðborginni og fara svo saman heim í kvöld að lokinni flugeldasýningu,“ segir Hildur. Ókeypis skutlur aka á milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju í dag. Frá klukkan 22 verður hægt að taka strætó ókeypis frá Sólfarinu í öll hverfi Reykjavíkur og verða allir vagnar notaðir til að koma fólki heim. Auk þess verður aukin tíðni á flestum leiðum Strætó allan daginn og gildir almennt fargjald í þær. Sjá einnig: Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Hildur segir prýðilega hafa gengið hvað varðar samgöngur og samstarf við lögreglu. Hún sé gríðarlega þakklát öllum sem staðið hafa að hátíðinni. „Ég er bara gríðarlega þakklát öllum sem hafa staðið að hátíðinni og við vonumst auðvitað bara til að allt fari vel og fallega fram í dag og í kvöld og að fólk geti skemmt sér vel.“
Veður Menningarnótt Reykjavík Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Flugvél fór út af brautinni á Hólmsheiði Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira