Fótbolti

For­est til­búið að greiða 50 milljónir fyrir Delap

Siggeir Ævarsson skrifar
Liam Delap skoraði eitt mark fyrir Chelsea í 28 leikjum á síðasta tímabili
Liam Delap skoraði eitt mark fyrir Chelsea í 28 leikjum á síðasta tímabili vísir/Getty

Chelsea og Notthingham Forest hafa komist að munnlegu samkomulagi um kaupverð á Liam Delap sem hefur verið settur út í kuldann hjá Chelsea.

Delap gekk í raðir Chelsea síðasta sumar frá Ipswich en Lundúnaliðið nýtti sér klásúlu í samningi Delap og greiddi fyrir hann 30 milljónir punda. Hann skoraði aðeins eitt mark í 28 leikjum og hefur ekki æft með aðalliðinu í aðdraganda tímabilsins.

Þrátt fyrir þessa takmörkuðu frammistöðu virðast forsvarsmenn Forest vera tilbúnir að borga 20 milljónum meira fyrir Delap en Chelsea gerði fyrir ári síðan og slá þá um leið met félagsins yfir dýrustu kaup en liðið greiddi 37,5 milljónir fyrir Omari Hutchinson fyrir ári síðan.

Kaupin eru ekki endanlega í höfn en það virðist þó fátt stoppa þau úr þessu og aðeins formsatriði eftir. Forest mun greiða 45 milljónir punda út í hönd og aðrar fimm til viðbótar þegar fram líða stundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×