Sport

Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða

Aron Guðmundsson skrifar
Tony Romo hefur ekki átt sjö dagana sæla upp á síðkastið
Tony Romo hefur ekki átt sjö dagana sæla upp á síðkastið Vísir/Getty

Tony Romo, fyrrverandi leikstjórnandi Dallas Cowboys í NFL deildinni, hefur játað sök í máli sem höfðað var gegn honum fyrir að aka bifreið undir áhrifum. Romo segist eiga við drykkjuvandamál að stríða.

Greint er frá vendingum málsins á vef CBS í dag en Romo hefur verið leikgreinandi og lýsandi hjá CBS Sport í NFL deildinni upp á síðkastið. 

Þann 27. júlí síðastliðinn var hann stöðvaður af lögreglu grunaður um akstur undir áhrifum vímuefnis og seinna handtekinn.

Romo mun ekki berjast fyrir dómstólum í þeim liðum sem hann er ákærður fyrir. Þess í stað hefur hann játað sök og í yfirlýsingu segist hann eiga við drykkjuvandamál að stríða. 

Eftir fjórtán tímabil í NFL deildinni neyddist Romo til þess að leggja á skóna á hilluna vegna meiðsla. 

Hann hefur upplifað mikinn sársauka síðan þá á líkama og sál, orðið háður áfengi og verkjalyfjum.

„Eins og ég hef kennt þremur sonum mínum þá stendur maður upp og tekur ábyrgð þegar að manni skrikar fótur,“ segir Romo meðal annars í yfirlýsingu sinni. 

Hann ætlar að vinna í sínum málum og snúa aftur á skjáinn.

„Undanfarinn mánuður hefur verið erfiður en einnig mikilvægur fyrir mig. Hefur orðið þess valdandi að ég hef þurft að horfast í augu við mín mistök.“

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×