Innlent

Tals­vert tjón á verslun og týndar tennur

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Töluvert tjón varð í versluninni Andrá.
Töluvert tjón varð í versluninni Andrá. vísir

Eldur kviknaði í kjallara að Laugavegi 16 þar sem Hótel Skjaldbreið og verslunin Andrá eru til húsa. Einn var handtekinn grunaður um íkveikju og ljóst er að tjónið er verulegt.

Sextíu hótelgestir þurftu að yfirgefa svæðið þegar eldurinn kom upp og voru tveir fluttir á slysadeild. Í myndbandinu hér að neðan er rætt við hótelstjórann Kristófer Oliversson sem lýsir því hvernig aðstæður voru í nótt. 

Töluvert tjón var einnig í versluninni Andrá en í viðtalinu segjast eigendur verslunarinnar að áfallið sé mikið. Bandaríkjamaður sem gisti á hótelinu lýsir því hvernig reykjalyktin sveið. Hann þurfti að hraða sér út með slíkum hætti að hann gleymdi tönnunum sínum í reykfylltu herberginu.


Tengdar fréttir

Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið

Einn er grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið á Laugarvegi 16 í nótt. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir hann hafa verið handtekinn um klukkan fimm í nótt en slökkvistarf var í gangi til um klukkan fjögur. 

Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni

Eva Katrín Baldursdóttir og Steinunn Hrólfsdóttir voru vaktar í nótt við það að viðvörunarkerfið í verslun þeirra, Andrá, var farið í gang. Eldur var í kjallara hótels í sama húsnæði og töluverður reykur í versluninni sem er full af nýjum vörum fyrir haustið. Þær segja þetta mikið áfall og tjónið líklega verulegt.

Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann

Kristófer Oliversson, forstjóri Center Hotel, segir tjónið verulegt á Hótel Skjaldbreið, hóteli þeirra í miðbænum, þar sem kom upp bruni í nótt. Hann segir um 60 gesti hafa verið flutta á önnur hótel í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×