Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Birgir Olgeirsson skrifar 3. september 2026 16:33 Íbúðauppbygging við Hlíðarenda, handan Reykjavíkurflugvallar. Borgin ætlar almennt ekki lengur að setja bindandi hlutfallsviðmið um stærð eða herbergjafjölda íbúða á einstökum byggingarreitum. Vilhelm Reykjavíkurborg ætlar að gefa uppbyggingaraðilum meira svigrúm til að ákveða stærð og herbergjafjölda íbúða og draga úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum. Samfylkingin segir breytingarnar veikja skipulagsramma borgarinnar og geta gert áætlanir um innviði ómarkvissar.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti breytingarnar með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn tveimur atkvæðum Samfylkingarinnar. Framvegis á almennt ekki að setja bindandi hlutfallsviðmið um stærð eða herbergjafjölda íbúða á einstökum byggingarreitum nema sérstakar skipulagslegar eða félagslegar ástæður séu fyrir því. Í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs segir að stíf viðmið geti orðið úrelt þegar mörg ár líða frá gerð skipulags þar til framkvæmdir hefjast. Á þeim tíma geti eftirspurn, efnahagsástand, lánareglur og mat á húsnæðisþörf breyst. Borgin ætlar að veita uppbyggingaraðilum meira svigrúm um stærð íbúða og setja aðeins kröfur um verslun og þjónustu á jarðhæðum þar sem eftirspurn og skipulagsmarkmið gefa tilefni til.Vilhelm Sviðið leggur þó áherslu á að viðmið verði áfram nauðsynleg þegar ný skólahverfi og stærri hverfishlutar eru skipulögð. Borgin þurfi að geta áætlað þörf fyrir skóla, samgöngur og aðra þjónustu. Þar er meðal annars bent á að tvær 50 fermetra íbúðir geti haft svipuð áhrif á skólaþörf og ein 100 fermetra íbúð, en fleiri íbúðir geti aukið umferð og þörf fyrir bílastæði. Kröfur um verslun eða þjónustu á jarðhæðum eiga jafnframt aðeins að vera settar þar sem staðsetning, raunhæf eftirspurn og skipulagsmarkmið gefa tilefni til. Sviðið telur að sums staðar kunni að hafa verið gert ráð fyrir of miklu atvinnurými. Á stærri uppbyggingarsvæðum á þó áfram að tryggja rými fyrir nærþjónustu og virkar jarðhæðir á réttum stöðum. Samfylkingin og áheyrnarfulltrúi Vinstrisins segja breytingarnar fela í sér að vald yfir þróun hverfa sé fært til markaðarins. Samsetning íbúða ráði miklu um þörf fyrir skóla, íþróttamannvirki, veitur og samgöngur og því geti minni stýring torveldað áætlanagerð. Þau vara einnig við því að verði atvinnurými á jarðhæðum gefið upp of snemma geti hverfisbakarí, verslun, kaffihús og önnur nærþjónusta átt erfitt með að verða til síðar. Íbúðir á jarðhæðum við umferðarþungar götur geti auk þess boðið upp á lakari búsetugæði og skapað dauða götumynd.
Reykjavík Borgarstjórn Skipulagsmál Verslun Byggingariðnaður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira