Guðný fagnaði sigri með fimm mánaða dóttur og fékk kórónuna Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2026 09:00 Guðný Árnadóttir fékk sérstaka kórónu sem KDFF-kóngurinn eftir endurkomuna í gær. Hún fagnaði frábærum sigri með fimm mánaða dóttur sinni. Instagram/kristianstadsdff Landsliðsbakvörðurinn Guðný Árnadóttir eignaðist sína fyrstu dóttur 18. apríl en var engu að síður mætt út á völl í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær, í 2-0 útisigri Kristianstad gegn Djurgården.
Guðný var því minna en fimm mánuði að komast aftur út á fótboltavöllinn og ljóst að þrotlaus vinna hefur skilað sér. „Ég er búin að æfa stíft með liðinu síðastliðinn mánuð og núna er ég tilbúin,“ sagði Guðný við Kristianstadsbladet daginn fyrir leik. Komið var fram á 73. mínútu í gær þegar Nik Chamberlain, fyrrverandi þjálfari Þróttar og Breiðabliks, skipti Guðnýju inná völlinn og var henni skiljanlega vel fagnað. Fagnaðarlætin héldu svo áfram eftir leik og þegar kom að því að velja mann leiksins, eða „KDFF-kónginn“, var það Guðný sem fékk kórónuna frá liðsfélögum sínum. Hún stillti sér svo upp á fagnaðarmyndum með hina fimm mánaða Hildi Mjöll Pétursdóttur í fanginu. View this post on Instagram A post shared by Kristianstads DFF (@kristianstadsdff) Þessi skjóta endurkoma Guðnýjar þýðir að hún nær seinni hluta tímabilsins í sænsku úrvalsdeildinni en þar er Kristianstad nú í 4. sæti með 28 stig, fimm stigum á eftir næsta liði sem er Malmö. Endurkoma hennar opnar einnig á þann möguleika að Guðný verði til taks í komandi landsleikjum við Króatíu 9. og 13. október, í fyrri umferð umspilsins um að koma Íslandi á HM í fyrsta sinn. Það var Alice Egnér sem skoraði bæði mörk Kristianstad í gær, snemma í seinni hálfleik. Alexandra Jóhannsdóttir lék allan leikinn á miðju liðsins en Elísa Lana Sigurjónsdóttir var á varamannabekknum.
Sænski boltinn Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag Sjá meira