Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Sindri Sverrisson skrifar 16. september 2026 09:03 Albert Guðmundsson og félagar í íslenska landsliðinu þurfa að vinna sinn riðil í Þjóðadeildinin í haust til að komast beint upp í B-deild. Annað sæti dugar til umspils um að komast í B-deildina. Getty/Andrew J. Clark Ísland þarf helst að vinna sinn riðil nú í haust, eða enda í 2. sæti og vinna umspil, til að forðast það að sitja eftir í neðstu deild Þjóðadeildarinnar.
Framkvæmdastjórn UEFA staðfesti í gær nýjar reglur um Þjóðadeild karla í fótbolta sem hafa í för með sér að í stað fjögurra deilda þá verða aðeins þrjár deildir á næstu leiktíð. Ísland hefur brátt nýja leiktíð í Þjóðadeildinni og spilar nú í fyrsta sinn í C-deild, eftir að hafa verið í A-deild fyrstu tvö tímabilin eftir stofnun keppninnar og svo tvö tímabil í B-deildinni. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tilkynnir einmitt landsliðshóp sinn á blaðamannafundi í dag, klukkan 13:15, í beinni útsendingu á Vísi. Ísland spilar svo við Eistland 26. september og í kjölfarið við Lúxemborg, Búlgaríu og aftur við Eistland, í fjögurra leikja landsleikjatörn til 6. október. Riðlinum lýkur svo með leikjum Íslands við Búlgaríu og Lúxemborg 13. og 16. nóvember. Nú er orðið ljóst að eftir þessa leiktíð verður hætt með D-deild og í staðinn verða til þrjár deildir, hver með átján liðum. Breytingarnar má sjá myndrænt hér að neðan. Breytingarnar á Þjóðadeild úr fjórum deildum í þrjár taka gildi fyrir næstu leiktíð, árið 2028.UEFA Þetta hefur auðvitað í för með sér auknar líkur á að Ísland verði í neðstu deild, þá C-deild, tímabilið 2028-29, einfaldlega vegna þess að engin D-deild verður lengur til. Breytingarnar gerast með þeim hætti að liðin sem enda í 3. og 4. sæti í sínum riðli í C-deild spila þar áfram á næstu leiktíð. Ef Ísland endar í 2. sæti fer liðið í umspil gegn liði sem endar neðst í sínum riðli í B-deild, og spilar sigurliðið í B-deild en tapliðið í C-deildinni. Vinni Ísland sinn riðil fer liðið beint upp í B-deild og verður þar í hópi 19.-36. bestu landsliða Evrópu. Eftir breytingarnar verður Þjóðadeildin svo þannig að hverri deild verður skipt upp í þrjá sex liða riðla og mun hvert lið spila sex leiki (á heima- OG útivelli við lið úr eigin styrkleikaflokki en á heima- EÐA útivelli við lið úr öðrum styrkleikaflokkum). Lið geta svo líkt og áður komist upp úr sinni deild eða fallið, farið í umspil um að komast upp eða forðast fall, eða komist í 8-liða úrslit bestu liðanna í A-deild sem enda svo með því að eitt lið verður Þjóðadeildarmeistari. Áhrifin á næsta HM Breytingarnar hafa svo áhrif á undankeppnina fyrir HM 2030 sem verður með gjörbreyttu sniði frá því áður. Liðin 36 úr A- og B-deildum Þjóðadeildarinnar munu spila þar í 1. deild en hin 18 liðin spila í 2. deild. Eftir Þjóðadeildina 2028-29 færast liðin í undankeppni HM sem skiptist í 1. og 2. deild. Alls verða 36 lið í 3 riðlum í 1. deild, eins og sjá má hægra megin á mynd, en 18 lið í 3 riðlum í 2. deild.UEFA Í 1. deildinni verður svo liðunum skipt í þrjá 12 liða styrkleikaflokka áður en dregið verður í þrjá 12 liða riðla, með fjórum liðum úr hverjum styrkleikaflokki. Hvert lið mun svo fá sína sex leiki, tvo gegn liðum úr hverjum styrkleikaflokki. Liðunum í 2. deild, sem Ísland þarf að spila í ef liðið vinnur sig ekki upp úr C-deild nú í haust, verður svo skipt í þrjá sex liða riðla. Ljóst er að sigurlið riðlanna þriggja í 1. deild komast beint á HM en fleiri lið úr 1. deild og einhver úr 2. deild munu fara í umspil um önnur HM-sæti sem Evrópa fær. Nákvæm útfærsla mun liggja fyrir síðar.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Fótbolti Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Handbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Dagskráin: Stórlið í eldlínunni Sport Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Efnilegastur í Bandaríkjunum: Slær Freddy Adu við Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn eftir aðeins fjóra leiki í starfi Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Efnilegastur í Bandaríkjunum: Slær Freddy Adu við Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Sjá meira