Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. september 2026 14:54 Árásin átti sér stað fyrir utan Íþróttamiðstöðina í Laugardal þar sem sundfólk ætlaði að móta sér stefnu fyrir allt landið. Vísir/Atli Sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn hjá Gróttu fyrir stefnumótunarfund Sundsambands Íslands í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Forseti ÍSÍ lítur málið alvarlegum augum og hlúði að sundþjálfaranum sem slasaðist á vettvangi.
Sundsamband Íslands boðaði forsvarsmenn sundfélaga og þjálfara um allt land til stefnumótunarfundar í húsakynnum ÍSÍ við Engjaveg í Laugardalnum síðdegis í gær. Fulltrúar sunddeilda fjölmenntu en áður en hægt var að stilla saman strengi í sundíþróttinni kom til óvæntra átaka fyrir utan bygginguna. Þar lágu leiðir sundþjálfara hjá KR og Gróttu saman en síðarnefnda félagið blés í lúðra fyrr á árinu og stofnaði sína eigin sunddeild. Samkvæmt heimildum Vísis réðst sundþjálfari KR á kollega sinn hjá Gróttu með höggum. Tilefnið liggur ekki fyrir en með stofnun sunddeildar Gróttu flutti nokkur fjöldi iðkenda sig frá KR og yfir í Gróttu. Þjálfari Gróttu var áður vinsæll þjálfari hjá KR. Eftir höggin mun sundþjálfari KR hafa gripið til hnífs og ógnað þjálfara Gróttu. Fjallað var um málið í dagbók lögreglu í morgun án þess að fram kæmi hverjir ættu í hlut. Þar kemur fram að maður, sem samkvæmt heimildum fréttastofu er sundþjálfari KR, hafi síðan ekið á brott og lögregluþjónar veitt honum eftirför. Henni hafi lokið með því að lögreglan ók á bíl mannsins og tók hann þar með úr umferð. Unnar Már Ástþórsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að umrætt atvik hafi átt sér stað í Laugardalnum. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, var handtekinn og yfirheyrður af lögreglunni. Honum var sleppt úr haldi í morgun. Ekki verður farið fram á gæsluvarðhald yfir honum en málið er enn til rannsóknar. „Ég veit ekki um líðan hans núna en hann var marinn, blár og skrámaður eftir þetta,“ segir Unnar um líðan þjálfara Gróttu. Hann þurfti að leita sér læknisaðstoðar á sjúkrahúsi. Ekki náðist í þjálfarann við vinnslu fréttarinnar. Forsetinn óvænt á svæðinu Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var á leið út úr húsnæði sambandsins skömmu eftir að lögregla handsamaði meintan árásarmann. Hann sagðist ekki vita hvað hefði átt sér stað eða hvers vegna kom til átaka á milli mannanna tveggja. „Ég var ekki beint vitni að atburðinum en ég var á leiðinni út úr húsi þegar lögreglan var að fara yfir málið með þeim sem var ráðist að og tveimur vitnum,“ segir Willum í samtali við fréttastofu. Willum Þór Þórsson er forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. vísir / ÍVAR Hann staðfestir að þeir sem komu að átökunum hafi verið á leið á fund hjá Sundsambandinu auk annarra þar sem vinna átti að stefnumótun í greininni. „Það er auðvitað skylda mín að heyra í fólki og svona bregðast við og styðja þann sem hafði orðið fyrir þessari árás, mikilvægt að hann væri ekki einn. Stundum kemur nú áfallið seinna og svo þurfti viðkomandi aðili að fara á bráðamóttöku og í skoðun,“ segir hann. Fagleg vinna innan ÍSÍ fari nú af stað og hefur Willum þegar haft samband við formenn og framkvæmdastjóra viðkomandi félaga. „Þetta er auðvitað mjög óvenjulegt, þetta er árás og maður veit ekki hvað veldur og fólk hefur áhyggjur,“ segir hann. Hvorki formaður Gróttu né formaður KR vildu tjá sig um málið þegar leitast var eftir því. Fulltrúar Sundsambands Íslands vildu einnig ekki tjá sig um málið.
ÍSÍ Sund Lögreglumál KR Grótta Seltjarnarnes Reykjavík Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira