Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar 25. september 2026 10:33 Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem hefur í áratugi þjónað íslensku þjóðinni. Þangað kemur fólk eftir veikindi, slys og önnur áföll til að byggja upp heilsu sína, færni og sjálfsbjargargetu og ná aftur fótfestu í lífinu. Á hverju ári njóta á annað þúsund manns endurhæfingar á Reykjalundi. Nú er komið að Reykjalundi sjálfum að fá endurhæfingu. Húsakostur Reykjalundar er að stórum hluta kominn til ára sinna og viðhalds- og endurbótaþörf er orðin mjög mikil. Fjölmörgum rýmum hefur þegar þurft að loka vegna ástands húsnæðisins og það hamlar starfseminni. Brýnt er að ráðast í úrbætur svo hægt sé að tryggja áfram öfluga og nútímalega endurhæfingarþjónustu. Endurhæfum Reykjalund Föstudaginn 2. október verður efnt til landssöfnunar undir yfirskriftinni „Endurhæfum Reykjalund“. Hollvinir Reykjalundar standa að átakinu í samvinnu við RÚV og verður söfnunin meðal annars í beinni útsendingu í sjónvarpi RÚV og úr símaveri Sýnar. Einnig mun starfsfólk Reykjalundar hjóla táknrænt um 3000 km leið á þrekhjólum í íþróttasal Reykjalundar, en það er vegalengdin milli allra heilsugæslustöðva landsins, þaðan sem sjúklingar koma með tilvísun læknis, til endurhæfingar á Reykjalundi. Í tilefni landssöfnunarinnar hafa prjónakonur hannað sérstakt prjónamunstur og munu vonandi fá tækifæri til að sýna fallegar peysur með Reykjalundar-munstri í útsendingunni. Markmið söfnunarinnar Markmiðið er að afla fjár til brýnna framkvæmda og endurbóta á húsnæði Reykjalundar, meðal annars gagngerra endurbóta á sjúkraþjálfunarálmu. Vonir standa til að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir um allt land taki höndum saman um þetta mikilvæga verkefni. Reykjalundur á sér yfir 80 ára farsæla sögu; hefur starfað frá miðri síðustu öld og er í dag stærsta sérhæfða endurhæfingarmiðstöð landsins. Þar er unnið að því á hverjum degi að bæta lífsgæði fólks, auka færni þess og gera því kleift að lifa sjálfstæðara lífi - og þegar mögulegt er - snúa aftur til vinnu og virkrar þátttöku í samfélaginu. Í slíkri starfsemi felast mikil mannleg og samfélagsleg verðmæti. Öflug endurhæfing er jafnframt mikilvæg fjárfesting fyrir allt íslenskt samfélag. Rekstur ekki drifinn af hagnaðarvon Rekstur Reykjalundar er ekki drifinn á grunni peningalegs hagnaðar og Reykjalundur greiðir ekki arð. Heilbrigðisþjónustan er veitt samkvæmt þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands, sem greiða fyrir endurhæfingu skjólstæðinga. Fjármögnunin nær hins vegar ekki til nauðsynlegs viðhald húsnæðis, uppbyggingar eða endurnýjunar húsnæðisins. Reykjalundur er í eigu SÍBS og hefur uppbygging staðarins í gegnum tíðina að verulegu leyti byggst á sjálfsaflafé, einkum af Happdrætti SÍBS. Þátttaka landsmanna í happdrætti hefur minnkað hratt á síðustu árum – og þar með tekjur til viðhalds og uppbyggingar húsakosts Reykjalundar. Endurhæfing fólks ætti heldur ekki að vera happdrætti. Reykjalundur hefur byggt upp kynslóðir Íslendinga og hjálpað fólki að ná vopnum sínum á ný. Nú gefst þjóðinni tækifæri til að leggja Reykjalundi lið svo þar verði áfram hægt að veita framúrskarandi endurhæfingu um ókomin ár. Höfundur er forstjóri Reykjalundar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svana Helen Björnsdóttir Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem hefur í áratugi þjónað íslensku þjóðinni. Þangað kemur fólk eftir veikindi, slys og önnur áföll til að byggja upp heilsu sína, færni og sjálfsbjargargetu og ná aftur fótfestu í lífinu. Á hverju ári njóta á annað þúsund manns endurhæfingar á Reykjalundi. Nú er komið að Reykjalundi sjálfum að fá endurhæfingu. Húsakostur Reykjalundar er að stórum hluta kominn til ára sinna og viðhalds- og endurbótaþörf er orðin mjög mikil. Fjölmörgum rýmum hefur þegar þurft að loka vegna ástands húsnæðisins og það hamlar starfseminni. Brýnt er að ráðast í úrbætur svo hægt sé að tryggja áfram öfluga og nútímalega endurhæfingarþjónustu. Endurhæfum Reykjalund Föstudaginn 2. október verður efnt til landssöfnunar undir yfirskriftinni „Endurhæfum Reykjalund“. Hollvinir Reykjalundar standa að átakinu í samvinnu við RÚV og verður söfnunin meðal annars í beinni útsendingu í sjónvarpi RÚV og úr símaveri Sýnar. Einnig mun starfsfólk Reykjalundar hjóla táknrænt um 3000 km leið á þrekhjólum í íþróttasal Reykjalundar, en það er vegalengdin milli allra heilsugæslustöðva landsins, þaðan sem sjúklingar koma með tilvísun læknis, til endurhæfingar á Reykjalundi. Í tilefni landssöfnunarinnar hafa prjónakonur hannað sérstakt prjónamunstur og munu vonandi fá tækifæri til að sýna fallegar peysur með Reykjalundar-munstri í útsendingunni. Markmið söfnunarinnar Markmiðið er að afla fjár til brýnna framkvæmda og endurbóta á húsnæði Reykjalundar, meðal annars gagngerra endurbóta á sjúkraþjálfunarálmu. Vonir standa til að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir um allt land taki höndum saman um þetta mikilvæga verkefni. Reykjalundur á sér yfir 80 ára farsæla sögu; hefur starfað frá miðri síðustu öld og er í dag stærsta sérhæfða endurhæfingarmiðstöð landsins. Þar er unnið að því á hverjum degi að bæta lífsgæði fólks, auka færni þess og gera því kleift að lifa sjálfstæðara lífi - og þegar mögulegt er - snúa aftur til vinnu og virkrar þátttöku í samfélaginu. Í slíkri starfsemi felast mikil mannleg og samfélagsleg verðmæti. Öflug endurhæfing er jafnframt mikilvæg fjárfesting fyrir allt íslenskt samfélag. Rekstur ekki drifinn af hagnaðarvon Rekstur Reykjalundar er ekki drifinn á grunni peningalegs hagnaðar og Reykjalundur greiðir ekki arð. Heilbrigðisþjónustan er veitt samkvæmt þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands, sem greiða fyrir endurhæfingu skjólstæðinga. Fjármögnunin nær hins vegar ekki til nauðsynlegs viðhald húsnæðis, uppbyggingar eða endurnýjunar húsnæðisins. Reykjalundur er í eigu SÍBS og hefur uppbygging staðarins í gegnum tíðina að verulegu leyti byggst á sjálfsaflafé, einkum af Happdrætti SÍBS. Þátttaka landsmanna í happdrætti hefur minnkað hratt á síðustu árum – og þar með tekjur til viðhalds og uppbyggingar húsakosts Reykjalundar. Endurhæfing fólks ætti heldur ekki að vera happdrætti. Reykjalundur hefur byggt upp kynslóðir Íslendinga og hjálpað fólki að ná vopnum sínum á ný. Nú gefst þjóðinni tækifæri til að leggja Reykjalundi lið svo þar verði áfram hægt að veita framúrskarandi endurhæfingu um ókomin ár. Höfundur er forstjóri Reykjalundar.
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun