Erlent

Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá vettvangi einnar árásar Rússa í Úkraínu. Í henni hæfði eldflaug fjölbýlishús í bænum Pryluky.
Frá vettvangi einnar árásar Rússa í Úkraínu. Í henni hæfði eldflaug fjölbýlishús í bænum Pryluky. AP/Evgeniy Maloletka

Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær.

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst.

Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á Úkraínu á undanförnum dögum og Úkraínumenn hafa einnig gert árásir í Rússlandi. Rússar hafa þó ákveðið forskot um þessar mundir, þar sem Úkraínumenn eiga erfitt með að verjast skotflaugaárásum Rússa.

Þá eru Rússar einnig farnir að nota nýja gerð langdrægra sjálfsprengidróna. Þeir eru þotuknúnir og fara mun hraðar en fyrri drónar sem Rússar hafa notað til árása í Úkraínu. Drónunum nýju hefur verið líkt við ódýrar stýriflaugar, þar sem þeir fljúga lágt og hratt að skotmörkum sínum svo erfitt er að skjóta þá niður með þeim aðferðum sem Úkraínumenn hafa þróað á undanförnum árum.

Úkraínumenn eru að þróa eigin þotuknúna dróna sem eru smáir og til stendur að nota til að granda sjálfsprengidrónum Rússa.

Ráðamenn í Úkraínu hafa áhyggjur af því að veturinn verði þeim erfiður og heita því að gera sitt til að það sama gildi fyrir Rússa.


Mótmælti orðum Rubios

Þá mótmælti Selenskí orðum Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að þrátefli ríkti í viðræðum milli Úkraínu og Rússlands.

Rubio sagði í Portúgal í morgun að Bandaríkjamenn vildu sjá samið um frið milli Úkraínu og Rússlands. Sá friður þyrfti að vera sanngjarn og langvarandi.

Hann sagði að því fyrr sem slíkt samkomulag næðist, því betra.

„Bandaríkin eru reiðubúin til að hjálpa til við það. Við höfum reynt. Við munum halda áfram að reyna en við munum ekki verja of miklu í tilgangslaust ferli ef við náum engum árangri.“

Vilja nota Starlink í Rússlandi

Selenskí kallaði eftir því að Bandaríkjamenn opnuðu á notkun Starlink-móttökustöðva í Rússlandi, sem myndi gera Úkraínumönnum auðveldara að finna og gera árásir á skotpalla Rússa í Rússlandi.

Þannig vonast Úkraínumenn til að draga úr skotflaugaárásum á Úkraínu, þar sem mikill skortur er á flugskeytum í loftvarnarkerfi sem virka gegn skotflaugum.

„Opnið Starlink fyrir Úkraínu. Þið gerðuð það þegar þið voruð að bregðast við Íran. Ég hef sagt það opinberlega. Gerið okkur þetta kleift, hjálpið okkur að verja himinn okkar og stjórna þarna. Þá mun Pútín setjast niður við samningsborðið,“ sagði Selenskí, eins og fram kemur í grein Reuters.

Selenskí sagði að ef opnað yrði á þessa leið fyrir Úkraínumenn myndi Pútín „tapa öllu“ á tveimur til þremur mánuðum.

Það að geta notað Starlink-móttökustöðvar myndi auðvelda Úkraínumönnum drónaárásir í Rússland, þar sem þeir gætu stýrt þeim og það myndi einnig gera Rússum erfiðara að stöðva þá með rafrænum truflunum, svo eitthvað sé nefnt.

Selenskí sagði að á meðan Úkraínumenn gætu þetta ekki, væru Rússar að bíða eftir sambærilegri tækni frá Kína, sem myndi auðvelda þeim árásir í Úkraínu.

„Þetta er ekki þrátefli. Þetta er viljaskortur.“

Sagðir hafa gert útaf við vonir Pútíns um að ná Dónetsk

Áður en hann varð forseti á nýjan leik hét Trump því að binda enda á stríðið á sínum fyrsta degi í embætti eða jafnvel fyrr. Viðleitni hans til að hafa bein áhrif á Pútín hefur engu skilað og sérstakir erindrekar hans, þeir Jared Kushner og Steve Witkoff, tengdasonur Trumps og vinur hans, hafa einnig litlum árangri náð þegar kemur að því að koma á friði.

Þá hafa Bandaríkjamenn reynt að fá Úkraínumenn til að verða við núverandi kröfum Rússa og gefa eftir restina af Donbas-svæðinu, sem myndað er af Dónetsk- og Lúhanskhéruðum. Rússar stjórna svo gott sem öllu Lúhansk en Úkraínumenn stjórna enn stórum hluta Dónetsk en það svæði er gjarnan kallað „virkisbelti“ Úkraínu.

Rússar hafa lagt gífurlega mikla áherslu á að hernema þetta svæði en það hefur gengið mjög hægt og er talið hafa kostað þá mjög í mönnum og hergögnum á undanförnum árum.

Undanfarið hefur Rússum orðið lítið ágengt í Dónetsk. Úkraínumenn hafa staðið í gagnárásum í héraðinu á síðustu mánuðum sem virðast hafa gengið mjög vel.

Sjá einnig: Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk

Í greiningu hugveitunnar Institute for the study of war segir að útlit sé fyrir að Úkraínumenn hafi gert útaf við vonir Pútíns um að ná Dónetsk á þessu ári. Það vildu Rússar gera með því að fara framhjá virkisbeltinu og umkringja það en Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað þær tilraunir.

Samhliða þessum hægagangi Rússa á víglínunni hefur aukið púður verið fært í árásir á úkraínskar borgir fyrir veturinn.

 Gagnrýndi einnig viðskiptavangaveltur Bandaríkjamanna

Nýverið bárust fregnir af því að Bandaríkjamenn væru að íhuga að gera þær breytingar að bjóða Rússum umfangsmikla viðskiptasamninga áður en friði hefur verið komið á. Það á að vera til að sýna að þeim sé alvara með að bæta samskipti Bandaríkjanna og Rússlands.

Meðal annars hafa bandarískir og rússneskir erindrekar rætt um að fá bandaríska fjárfesta til að koma að Nord Stream-gasleiðslunum, sem fluttu jarðgas frá Rússlandi til Evrópu fyrir innrásina í Úkraínu 2022.

Selenskí ýjaði að þessum fregnum í samtali við blaðamenn í dag, þegar hann hafði gagnrýnt orð Rubios um þrátefli.

„Þú getur ekki annars vegar samið við Rússa um framtíðarviðskiptasamninga, á sama tíma og þú segir að við séum í einhvers konar pólitísku þrátefli.“

Selenskí sagði í lok síðasta mánaðar að hann hefði fengið þau skilaboð frá Bandaríkjamönnum að mögulega yrði haldinn þriggja hliða fundur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Hann lýsti þó yfir miklum efasemdum um að Pútín hefði raunverulegan áhuga á því að setjast við samningaborðið og ekkert hefur heyrst af þessum fundi. Úkraínskir erindrekar munu ferðast til Bandaríkjanna á morgun og ræða þar við embættismenn Trumps.

Selenskí sagði í dag að meðal annars myndu þeir tala um loftvarnir og linnulausar árásir Rússa á úkraínskar borgir.


Tengdar fréttir

Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á af­mælis­degi Pútíns

Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta.

Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú

Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á brú í norðurhluta Kænugarðs í nótt. Borgarstjóri höfuðborgarinnar í Úkraínu segir árásina merki um aukningu árása á mikilvæga innviði Kænugarðs.

Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna

Vladimír Pútín syrgði Sovétríkin sálugu á öryggisráðstefnu sinni í Moskvu í gær. Forsetinn sagði meðal annars að fall þeirra hefði verið harmleikur mikill og haft hræðilegar afleiðingar fyrir milljónir manna. Í sömu ræðu sagði Pútín mikil ósannindi um innrás Rússa í Úkraínu og hélt því fram að hann hefði engan áhuga á því að ráðast á annað ríki í Evrópu, í sama mund og hann hótaði beitingu kjarnorkuvopna gegn Evrópu.

Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov

Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk.

Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi

Íbúar Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu, hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði. Þá skortir mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi. Þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn þeim og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×