Fótbolti

Siggi Raggi saknar barnanna og gefur ís­lenskum liðum undir fótinn

Sindri Sverrisson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er með NSÍ á toppnum í Færeyjum, þremur stigum á undan næsta liði.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er með NSÍ á toppnum í Færeyjum, þremur stigum á undan næsta liði.

Fótboltaþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur gert frábæra hluti með NSÍ Runavík á sínu fyrsta ári sem þjálfari liðsins. Óvissa ríkir hins vegar um framhaldið og kveðst Siggi Raggi sakna barnanna sinna heima á Íslandi.

NSÍ er á toppi færeysku úrvalsdeildarinnar þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir og gæti unnið sinn fyrsta meistaratitil í nítján ár. Þá stóð liðið sig vel í Evrópukeppni í sumar.

Færeyski miðillinn bolt.fo bendir á að hins vegar hafi Siggi Raggi enn ekki fengið tilboð um að halda áfram með NSÍ. Hann staðfestir þetta við miðilinn og segir menn ætla að setjast niður og fara yfir stöðuna að tímabilinu loknu. Fókusinn sé á að landa titlinum en lokaumferðin er 31. október.

„Hvort ég verði áfram þjálfari NSÍ eða ekki á eftir að koma í ljós en ég ætla að skoða þá valkosti sem munu standa mér til boða hvort sem eru á Íslandi, Færeyjum eða annars staðar erlendis,“ bætir Siggi Raggi við á Facebook-síðu sinni. Hann kveðst sakna fjölskyldunnar.

„Árangur NSÍ á þessu ári hefur verið stórkostlegur og verður vonandi sá besti í nærri 70 ára sögu félagsins en eins og kom fram á bolt.fo þá hef ég saknað barnanna minna sem búa á Íslandi og ætla því að vera líka opinn fyrir þjálfarastörfum heima ef þau kunna að bjóðast,“ skrifar Siggi Raggi.

Áður en Siggi Raggi tók við NSÍ stýrði hann síðast Keflavík hér á landi, 2020-2023. Hann hefur einnig meðal annars verið þjálfari kvennalandsliða Kína og Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×