Fótbolti

Norska tromman á heims­meistara­mótinu seldist fyrir margar milljónir

Andri Broddason skrifar
Haaland heldur á trommunni sem átti eftir að seljast fyrir margar milljónir á uppboði í Noregi.
Haaland heldur á trommunni sem átti eftir að seljast fyrir margar milljónir á uppboði í Noregi. Patrick Smith/Getty Images

Fólk hefur oft gaman af því að kaupa hluti sem hafa verið notaðir á sögulegum augnablikum. Gengi Noregs á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar var frábært og urðu mikið af stórum augnablikum fyrir norsku þjóðina. Þar var fagn liðsins með róðri sem stóð rækilega upp úr hjá þeim sem fylgdust með mótinu.

Fagnið vakti athygli þegar bæði Martin Ödegaard og Erling Haaland stjórnuðu fagninu með því að slá í trommu inni á vellinum. Sú tromma var á uppboði í Noregi og seldist hún á 1,3 milljónir norskra króna eða tæpar 17 milljónir íslenskra króna.

Rétt áður en uppboðið var að klárast var hæsta boð 610 þúsund norskar krónur. Það byrjaði þó að hækka hratt eftir því sem leið á uppboðið og þurfti að framlengja það.

Á vefsíðunni þar sem tromman var á uppboði var skrifuð lýsing á trommunni þar sem sást vel á henni „Tromman ber stolt merki sögunnar sem hún hefur verið hluti af. Það sést að hún er mikið notuð, það vantar tappa á annan fótinn og hún er skreytt límmiðum frá hinum ýmsu félögum,“ er sagt í lýsingu trommunnar.

Peningurinn sem var fenginn fyrir trommuna fór til Norwegian refugee Council sem hjálpar þeim sem þurfa að flýja heimalandið sitt að gera það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×