Íslenski boltinn

Gummi Ben: Matthías að­stoðar Rúnar Pál í Stjörnunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Matthías Vilhjálmsson endaði leikmannaferil sinn sem Íslandsmeistari.
Matthías Vilhjálmsson endaði leikmannaferil sinn sem Íslandsmeistari. Vísir/Hulda Margrét

Matthías Vilhjálmsson yfirgefur Víkina og færir sig yfir í Garðabæinn eftir þetta tímabil samkvæmt því sem Guðmundur Benediktsson sagði frá í Stúkunni í kvöld.

Heimildir Gumma Ben herma að Matthías verði aðstoðarþjálfari Rúnars Páls Sigmundssonar hjá Stjörnunni í Bestu deildinni 2027. Rúnar Páll stýrði Gróttu í sumar en á dögunum var tilkynnt um endurkomu hans í Garðabæinn.

Rúnar Páll þjálfaði Stjörnuna frá 2014 til 2021 og gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrsta og eina skiptið sumarið 2014. Nú tekur hann við liðinu á nýjan leik og fær reynslubolta til liðs við sig. Matthías er ekki reyndur þjálfari en átti farsælan feril, bæði hér heima og úti í atvinnumennsku.

Matthías setti fótboltaskóna upp á hilluna eftir síðasta tímabil þar sem hann varð Íslandsmeistari með Víkingum.

Matthías hefur verið að þjálfa yngri flokka hjá Víkingum í sumar en stígur nú skrefið upp í meistaraflokksþjálfun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×