Innlent

Um­ferðar­slys á Breiðholtsbrautinni

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang.
Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang. Vísir/Vilhelm

Árekstur varð á Breiðholtsbrautinni í grennd við Mjóddina nú síðdegis.

Þetta staðfestir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang.

Slysið varð á brú á Breiðholtsbrautinni sem liggur yfir Reykjanesbrautina.


Ekki liggur fyrir hversu margir lentu í slysinu en tilkynningin barst klukkan tíu mínútur yfir fjögur. Við fyrstu var slysið ekki talið alvarlegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×