Íslenski boltinn

Kveðja Kristinn og Kristinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Kristinn Steindórsson (t.v.) og Kristinn Jónsson (t.h.) eru á förum frá Blikum.
Kristinn Steindórsson (t.v.) og Kristinn Jónsson (t.h.) eru á förum frá Blikum. Vísir/Samsett

Nafnarnir og 36 ára gömlu jafnaldrarnir Kristinn Jónsson og Kristinn Steindórsson eru á förum frá uppeldisfélaginu Breiðabliki. Félagið kvaddi félagana í gær.

Báðir eru að klára samning sinn í Kópavogi við lok tímabilsins í Bestu deildinni sem kláraðist um helgina. Hvorugur fær nýjan samning við Breiðablik og því báðir á förum, líkt og Breiðablik staðfesti í sitthvorri kveðju-færslunni á Facebook-síðu félagsins í gær.

Báðir voru utan leikmannahóps liðsins í 8-3 tapi Breiðabliks fyrir KR í lokaumferð deildarinnar um helgina.

Báðir voru hluti af liði Blika sem vann fyrsta titil í sögu félagsins er það varð bikarmeistari árið 2009 og liðinu sem vann fyrsta Íslandsmeistaratitilinn 2010.

Einnig voru þeir báðir hluti af Blikaliðinu sem varð Íslandsmeistari sumarið 2024 og þá unnu þeir bikartitil með liðinu á nýliðnu sumri.

Hvorugur hefur staðfest hvort þeir haldi knattspyrnuiðkun áfram eða ekki og munu nafnarnir eflaust leggjast yfir sín mál næstu vikur og ákveða næstu skref.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×