Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar 28. október 2026 13:31 Fyrir rúmum tveimur árum var boðað til neyðarfundar þingmanna vegna útlits Ölfusárbrúar. Málið var í fjölmiðlum dögum saman og þingmenn og sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi voru ómyrkir í máli. Nokkrum dögum fyrr hafði skelfilegur atburður átt sér stað á neyðarvistun Stuðla þar sem unglingur lét lífið í bruna. Fyrr um sumarið hafði komið út skýrsla þar sem fjallað var um aukið ofbeldi meðal barna og vaxandi vímuefnaneyslu. Skýrslan og staðan á Stuðlum fengu athygli í tvo daga. Enginn neyðarfundur var boðaður. Undanfarna viku hefur varla verið hægt að opna fjölmiðil eða samfélagsmiðil, kveikja á útvarpi eða sjónvarpi án þess að heyra eða lesa um áform ríkisstjórnarinnar varðandi loftbrú. Fólki er heitt í hamsi, stjórnmálamenn skrifa hverja greinina á fætur annarri og fjölmiðlar fylgja málinu eftir dag eftir dag. Þriðjudaginn 27. október var Kveikur á dagskrá RÚV þar sem fjallað var um einkarekin úrræði fyrir börn í vanda. Í þættinum komu fram upplýsingar sem voru sláandi fyrir margra hluta sakir. Eftirlit með þessum stöðum er í skötulíki, fagfólk er þar af skornum skammti, starfsmannavelta mikil og alvarleg atvik koma ítrekað upp. Á sama tíma greiða eigendur sér há laun og taka út verulegar fjárhæðir í arð. Það virðist sem hægt sé að græða vel á vanda barna án þess að tryggja þeim þá faglegu þjónustu og vernd sem þau eiga rétt á. En þetta virðist bara engu máli skipta. Og það sem verra er: Þetta eru ekki nýjar upplýsingar. Þær hafa áður komið fram. Umboðsmaður ómyrkur í máli Fyrir tveimur árum birtust tvær heimsóknarskýrslur umboðsmanns Alþingis um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn, Klettabæ og Vinakot. Niðurstöðurnar voru grafalvarlegar. Skortur á fagmenntuðu starfsfólki, vanmannaðar vaktir, verulegir annmarkar á eftirliti sveitarfélaga, ófullnægjandi lagagrundvöllur vistunar barna og skortur á skýrri lagaumgjörð og skráningu þegar kom að beitingu nauðungar og þvingunar. Þetta eru ekki smávægilegar athugasemdir um rekstur. Þetta eru alvarlegar athugasemdir um réttindi og öryggi barna. Sama sumar kom út skýrsla þar sem fram kom að áhættuhegðun barna hefði aukist verulega á aðeins tveimur árum. Þar kom meðal annars fram að tilkynningum um vímuefnaneyslu stúlkna hefði fjölgað um 93% á þessu tímabili. Viðvörunarljósin voru ekki bara farin að blikka. Þau loguðu skært. Það blasir við að málefni barna eru ekki ofarlega í raunverulegri forgangsröðun á Íslandi. Við höldum áfram að reka samfélag sem er að mörgu leyti barnfjandsamlegt. Áherslan er á efnisleg gæði fremur en geðheilbrigt umhverfi. Við erum tilbúin að leggja gríðarlega fjármuni í mannvirki og samgöngur en þegar kemur að börnum í vanda virðist alltaf vanta bæði peninga og pólitískan vilja. Þegar við höfum áhyggjur af peningum þá mætir samkeppniseftirlitið óvænt í heimsókn en þegar við höfum áhyggjur af börnum er tilkynnt með viku fyrirvara um fyrirhugað eftirlit. Hvernig búum við að verðandi foreldrum? Hvernig gerum við þeim kleift að sinna foreldrahlutverkinu fyrstu tvö ár ævi barnsins? Hvað setjum við í forgang þegar kemur að uppeldi og velferð barna? Og hvað gerist svo þegar börn lenda í vanda? Við höfum sætt okkur við að útvista ekki aðeins þjónustu við börn heldur í raun ábyrgðinni á þeim. Börn í alvarlegum vanda eru send í úrræði þar sem eftirlit er ófullnægjandi, fagþekking af skornum skammti og réttindi þeirra ekki tryggð. Á sama tíma greiða eigendur sér há laun og taka út arð af starfseminni. Vandi barna er orðinn að tekjulind fyrir einkaaðila á meðan hið opinbera bregst skyldum sínum. Þetta er ekki bara sorglegt. Þetta er óásættanlegt. Bara ef börnin væru Ölfusárbrú eða jarðgöng Staðan er einfaldlega þessi: Við forgangsröðum loftbrú, Ölfusárbrú, jarðgöngum og endalausum sambærilegum verkefnum ofar en velferð og réttindum barna. Það er sú niðurstaða sem blasir við þegar við skoðum hvað fær stjórnmálamenn til að bregðast við, kalla saman neyðarfundi og krefjast tafarlausra aðgerða. Við getum ekki endalaust látið eins og okkur komi þessi staða á óvart. Ekki þegar Kveikur fjallar enn einu sinni um brotalamir í kerfinu. Ekki þegar umboðsmaður Alþingis hefur ítrekað bent á alvarlega annmarka á réttindum og öryggi barna. Og ekki þegar skýrslur hafa árum saman sýnt að börnum er ekki sinnt og vandi þeirra verður alvarlegri. Við vitum þetta allt saman. Spurningin er hvort okkur sé nógu annt um börnin til að gera eitthvað í málinu. Það verður að minnsta kosti ekki gert með því að skipa enn eina þingnefndina um málefni barna sem kemur aldrei saman og skilar engri skýrslu. Börn þurfa ekki fleiri yfirlýsingar um að þau séu í forgangi. Þau þurfa að vera í forgangi. Höfudur er framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grímur Atlason Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun