Innlent

Hópamyndun og hótanir ung­linga við fé­lags­mið­stöð í Kópa­vogi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögreglan sinnti verkefnum víða um höfuðborgarsvæðið í gær og nótt. Myndin er úr safni. 
Lögreglan sinnti verkefnum víða um höfuðborgarsvæðið í gær og nótt. Myndin er úr safni.  Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti, 111, í gær eða nótt. Fram kemur í dagbók að einn hafi verið handtekinn vegna málsins og vistaður í fangageymslu.

Í hverfi 101 var tilkynnt um innbrot og í Kópavogi um hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð við grunnskóla í bæjarfélaginu.

Í tilkynningu segir að nokkur erill hafi verið það sem af er nætur og að þrír hafi gist í fangageymslum um klukkan fimm í morgun.

Í dagbók segir einnig að lögreglu hafi verið tilkynnt um „óvelkominn aðila“ í húsi í hverfi 105 sem hafi verið með ógnandi hegðun. Hann var handtekinn og fluttur á stöð til samtals.

Þá var í hverfi 108 tilkynnt um „afbrigðilega hegðun einstaklinga“ í bíl við verslun og var það afgreitt samkvæmt verklagi.

Auk ofangreindra mála sinntu lögreglumenn hinum ýmsu umferðarmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×