Var klár í samkeppnina við Ingvar Andri Broddason skrifar 29. október 2026 12:47 Aron Snær var bjartsýnn þegar hann gekk til Víkings í samkeppni við Ingvar Jónsson. Samsett/Vísir Aron Snær Friðriksson, markmaður Víkinga, fékk gullhanskann eftir tímabilið í Bestu deild karla. Það ætti að koma fáum á óvart þar sem Víkingur var með besta varnarlið deildarinnar en á tímabilinu gekk mikið á. „
Þetta er búið að vera ógeðslega gaman, þetta er eins og sjö tímabil í einu, það er búið að ganga svo mikið á. Ég er búinn að upplifa margt en þetta er geggjað,“ sagði Aron Snær í lokaþætti Stúkunnar. Klippa: Stúkan: Aron Snær fær gullhanskan Aron Snær kom til Víkings fyrir tímabilið frá Njarðvík en var líklegast ekki að búast við að spila eins stórt hlutverk með liðinu og hann gerði. Ingvar Jónsson var hjá Víkingum og því erfið samkeppni fyrir Aron Snæ. „Við fótboltamenn erum það ruglaðir að við höldum alltaf að við séum að fara að spila. En ég gerði mér alveg fulla grein fyrir því að [Ingvar] er líklegast sigursælasti markmaður Íslands. Ég vissi að ég væri að fara í erfiða samkeppni en ég hafði alltaf trú á því að ég gæti klárað þetta.“ Ingvar greindist með illkynja krabbamein og gat því ekki spilað meira á tímabilinu. Liðið hentaði honum vel Víkingur var ríkjandi meistari fyrir tímabilið og það voru miklar væntingar til liðsins fyrir tímabilið. Því fylgir mikil pressa fyrir markmann en Aroni Snæ fannst sú áskorun vera góð. „Þú ert kannski ekki að verja ellefu skot í leik, en það kemur eitt móment og þú þarft að vera með það á hreinu. Þú þarft að geta spilað út, spilað hátt og tekið fyrirgjafir og stungusendingar, sem hentar mér fínt.“ Aron Snær var liðsfélagi Alberts Brynjars Ingasonar hjá Fylki og benti Albert Brynjar á að margir leikmenn þaðan hafa orðið Íslandsmeistarar. Þar viðurkenndi Aron Snær að hann væri mikill stuðningsmaður Fylkis þrátt fyrir að vera leikmaður Víkings. „Ég fylgist mjög mikið með [Fylki] og missi eiginlega ekki af leik og ég var virkilega pirraður yfir því að þeir komust ekki upp í Bestu deildina í ár,“ sagði Aron Snær og grínaðist með að Albert Brynjar hefði kennt leikmönnum Fylkis mikið. Góður skotmenn Einn af kostunum við að æfa með Víking er að það er mikið af frábærum skotmönnum þar. Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið einn besti spyrnumaður í sögu Íslendinga en þeir eru fleiri sem eru góðir skotmenn. Sveinn Margeir Hauksson átti eitt af mörkum tímabilsins þegar hann skoraði úr aukaspyrnu í næstsíðustu umferð deildarinnar gegn Breiðablik. Enda sagði Aron Snær að hann væri bara rétt á eftir Gylfa Þór. Klippa: Mark Sveins Margeirs gegn Breiðablik Ögmundur Kristinsson kom til Víkings í sumar og gaf Aroni Snæ aukna samkeppni. Það er oft erfitt að vera í liði en samt vera í keppni við annan markmann um hvor á að vera í byrjunarliðinu. „Ég held að 90 prósent af markmönnum séu ágætisdrengir og þá er þetta bara teymisvinna, en auðvitað er það persónulegt þegar þér er hent á bekkinn. En í grunninn ertu í teymisvinnu og vilt að félagið þitt vinni. Við fengum Ögmund inn og hann gerði fáranlega vel fyrir okkur og við unnum mjög vel saman.“
Íslenski boltinn Fótbolti Víkingur Reykjavík Stúkan Besta deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira