Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Eiður Þór Árnason skrifar 30. október 2026 19:27 Málið hófst með heimsóknum Eflingar og Fagfélaganna í þrjá skóla í Mosfellsbæ. Vísir/Vilhelm Starfsmaður ræstingarfyrirtækis fékk maka sem starfaði ekki hjá fyrirtækinu til að sinna störfum sínum í grunnskóla Mosfellsbæjar. Þetta kom í ljós við vinnustaðaeftirlit en forsvarsfólk segir þetta hafa verið án vitundar eða leyfis stjórnenda. „
Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt reglum iClean og var starfsmaðurinn áminntur skriflega. Fyrirtækið hefur upplýst Mosfellsbæ um viðbrögðin við atvikinu,“ segir í yfirlýsingu frá ræstingarfyrirtækinu. Stéttarfélög gerðu sömuleiðis athugasemd við að starfsfólk iClean sem sinnti þrifum í grunnskólum hafi ekki verið með vinnustaðaskírteini líkt og því ber samkvæmt lögum. Fulltrúar iClean segja þetta hafa verið misbrest. „Það er á ábyrgð fyrirtækisins að tryggja að þeirri skyldu sé sinnt. Strax í kjölfarið voru gefin út vinnustaðaskírteini fyrir allt starfsfólk fyrirtækisins,“ segir í yfirlýsingunni sem iClean sendi frá sér „vegna umfjöllunar og gagnrýni stéttarfélagsins Eflingar að undanförnu.“ Þar segir að fyrirtækið hafi tekið við ræstingum í stofnunum Mosfellsbæjar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs eftir að hafa átt lægsta tilboðið í útboði. Farið undan í flæmingi Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gerði starfsemi iClean að umtalsefni í aðsendri grein fyrir rúmri viku og gerði athugasemdir við dræm viðbrögð Mosfellsbæjar þegar leitað var eftir samstarfi vegna vinnustaðaheimsókna þar sem kannað yrði hvort launakjör og afkastakröfur væru í samræmi við kjarasamninga. Í byrjun október hafi fulltrúar Eflingar og Fagfélaganna svo farið í vinnustaðaeftirlitsheimsókn að eigin frumkvæði í þrjá grunnskóla í Mosfellsbæ. Þar hafi starfsmenn á vegum iClean ekki borið á sér tilskilin vinnustaðaskírteini. „Í einum grunnskólanna var við störf einstaklingur sem ekki vildi segja á sér deili og fór undan í flæmingi. Fram kom í síðari samskiptum við iClean að umræddur einstaklingur var ekki í ráðningarsambandi við fyrirtækið. Engu að síður bar hann á sér aðgangskort merkt skólanum og fyrirtækinu og virðist hafa haft óheftan aðgang að húsnæðinu. Ástæða er til að nefna að í verksamningi Mosfellsbæjar við iClean er krafa um að starfsmenn sem sinna ræstingum séu með hreint sakavottorð, en augljóslega er ekki hægt að framfylgja slíkri kröfu ef óskráðir einstaklingar sinna þar ólöglegri vinnu,“ skrifaði formaður Eflingar í grein sem birtist 21. október. Fulltrúar iClean segja að athugun hafi leitt í ljós að einstaklingurinn sem starfaði í skólanum væri með hreint sakavottorð, líkt og annað starfsfólk fyrirtækisins. Sveitarfélagið sýnt Eflingu hroka Formaður Eflingar segir félagið hafa tilkynnt Mosfellsbæ um áðurnefnd brot á lögum um eftirlit á vinnustöðum, ólöglega vinnu og aðgang óskráðra einstaklinga að húsnæði bæjarins. „Ekki uppskar Efling þó þakklæti frá fulltrúum bæjarins, heldur móttók póst – frá enn einum embættismanninum, að þessu sinni titlaður sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs – þar sem þurrlega var tilkynnt um að starfsmaður Eflingar myndi heyra frá lögmanni bæjarins. Í gegnum samskipti Eflingar við Mosfellsbæ hafa fulltrúar bæjarins mestmegnis sýnt félaginu áhugaleysi, hroka og fálæti. Félagið hefur lagt fram þá einföldu ósk að bærinn nýti þegar umsamin ákvæði í verksamningi til að tryggja að réttindi verkafólks séu virt. Í stað þess að bregðast vingjarnlega við þessari ósk hafa erindi félagsins gengið eins og heit kartafla milli forsvarsmanna sem vísa hver á annan milli þess sem þeir láta af störfum og hunsa mótteknar beiðnir,“ sagði Sólveig Anna í aðsendri grein á Vísi. Afhent Mosfellsbæ og Eflingu gögn um launakjör Forsvarsfólk iClean segir að í kjölfar vinnustaðaeftirlitsins og athugasemda sem þar komu fram hafi Mosfellsbær óskað eftir gögnum um launakjör starfsfólks og skipulag ræstinga í stofnunum sveitarfélagsins. „iClean hefur afhent Mosfellsbæ gögnin. Sveitarfélagið hefur móttekið gögnin og telur þau í samræmi við kröfu sveitarfélagsins um afhendingu á gögnum. iClean hefur jafnframt afhent Eflingu þessi sömu gögn.“ „iClean er annt um að réttindi starfsfólks séu virt og að komið sé fram við það af virðingu. Með framlagningu gagna og skýringum hefur verið leitast við að sýna hvernig staðið er að þessum málum hjá fyrirtækinu. iClean ber virðingu fyrir mikilvægu hlutverki stéttarfélaga og telur eðlilegt að þau veiti fyrirtækjum aðhald,“ segir að lokum í yfirlýsingu fyrirtækisins.
Mosfellsbær Stéttarfélög Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Fékk áminningu fyrir að láta maka sinna störfum í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Sjá meira