Fleiri fréttir

Dollarinn hefur fallið um 12% gagnvart krónu frá júní

Gengi Bandaríkjadollars gaf eftir í gær gagnvart öllum helstu myntum og í kjölfarið fór dollarinn niður í 115 krónur. Hefur dollarinn þá ekki verið jafn ódýr í krónum talið síðan í mars á síðasta ári. Gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar hefur nú styrkst um 4% frá því í septemberbyrjun og um 12% frá júníbyrjun.

Nokkuð um viðskipti með atvinnuhúsnæði í ágúst

Í ágúst 2010 var 30 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 39 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 1.475 milljónir króna en 602 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 8 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Arion banki fær skell vegna Haga

Hlutafjárvirði Haga hleypur á tíu til 21 milljarðs króna. Óvíst er hvernig himinháum skuldum verður breytt. Ekki er útilokað að sá fjárfestir sem kaupir félagið greiði lítið en fái ellefu milljarða króna skuldir í heimanmund.

Þurfa að sækja fé á lánsfjármarkað

Stefnubreyting og aðhald hjá Orkuveitu Reykjavíkur eftir meirihlutaskipti í borginni þarf ekki að þýða breytingar hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélagi Orkuveitunnar.

Vill fá fyrrverandi hluthafa með í hópmálssókn gegn Björgólfi Thor

Fyrrverandi hluthafi í Landsbankanum hyggst höfða mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni en hann telur að Björgólfur Thor hafi blekkt yfirvöld og fjárfesta með rangri upplýsingagjöf um eignarhald sitt á bankanum. Hann hvetur aðra fjárfesta til að hafa samband við sig til að fara í hópmálssókn.

Mesta velta frá bankahruni

Metvelta var á skuldabréfamarkaði í dag, en hún nam 35.8 milljörðum króna. Síðasta met var slegið þann 20. september, eða fyrir tveimur dögum. Þetta er mesta velta á einum degi síðan 7. október 2008.

Kaupmáttaraukningin árin 2004 til 2008 er horfin

Sú kaupmáttaraukning sem varð meðal launþega á árunum 2004 til 2008 er horfin í kreppunni. Góðu fréttirnar eru að útlit er fyrir að kaupmátturinn sé að aukast að nýju, en að vísu hóflega.

ESA rannsakar ríkisstuðning við Sjóvá

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hóf í dag formlega rannsókn á veitingu ríkisstyrks við endurfjármögnun tryggingafélagsins Sjóvár. Rannsóknin snýr að 11,6 milljarða króna eiginfjárframlagi íslenska ríkisins. Ríkisstyrkurinn kann að hafa verið veittur í andstöðu við lög að mati stofnunarinnar, samkvæmt því sem fram kemur á vef EFTA.

Landsbankinn eignast Björgun að fullu

Landsbankinn hefur eignast allt hlutafé í verktakafyrirtækinu Björgun ehf.. Í tilkynningu frá bankanum segir að Björgun hafi verið í eigu Renewable Energy Resources ehf., dótturfyrirtækis Atorku Group hf., en í tengslum við skuldauppgjör RER hefur bankinn leyst til sín þau veð sem bankinn átti í eigum félagsins.

Um 400 milljarðar bíða eftir gjaldeyrishöftunum

Um 400 milljarðar kr. í erlendum krónueignum bíða þess að gjaldeyrishöftunum verði aflétt. Þetta kom fram í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundi sem nú stendur yfir þar sem vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar í morgun er til umræðu.

Launavísitalan óbreytt milli mánaða

Launavísitala í ágúst 2010 er 379,5 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,0%.

Stýrivextir lækkaðir um 0,75 prósentustig

Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,75 prósentustig. Fara vextirnir því niður í 6,25% og hafa ekki verið lægri síðan árið 2004. Nánar verður greint frá ákvörðuninni á fundi bankastjórnar Seðlabankans klukkan 11. Lækkun er í takt við spár greiningardeild bankanna.

Rekstur Kópavogsbæjar skilaði hálfum milljarði í afgang

Rekstur Kópavogsbæjar skilaði rúmlega 500 milljóna kr. afgangi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta kemur fram í óendurskoðuðu og ókönnuðu uppgjör Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 sem sent hefur verið til Kauphallarinnar.

Icelandic Group skráð á markað hérlendis og erlendis

Ætlunin er að skrá félagið Icelandic group á hlutabréfamarkað. Í tilkynningu um málið á vefsíðu Vestia segir að Framtakssjóðurinn mun beita sér fyrir skráninguni á næstu 18 til 24 mánuðum háð markaðsaðstæðum.

Fjármálafyrirtæki fá undanþágu frá samkeppnislögum

Fjármálafyrirtæki fá að hafa samstarf um möguleg málaferli vegna gengistryggðra lána samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem gerð var opinber í gær. Eftirlitið setur samstarfinu þó ákveðin skilyrði.

Landsbankinn spáir 0,75% lækkun stýrivaxta

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,75 prósentustig á vaxtadegi á morgun. Þeir verða þá 6,25%

Um sextíu ágreiningsmál fyrir dómstólum

Heildarfjárhæð lýstra krafna í þrotabú Kaupþings nemur nú um 6.800 milljörðum króna, en tæplega 28 þúsund kröfur eru skráðar í kröfuskrá þrotabúsins. Slitastjórn á eftir að taka afstöðu til um 3.500 krafna, sem samsvara um 2.200 milljörðum króna. Að langmestu leyti er um að ræða skuldabréfakröfur.

Samningur um orkusölu milli Landsvirkjunar og Alcan tekur gildi

Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hf. hafa uppfyllt eða fallið frá fyrirvörum við samning um raforkusölu til álversins í Straumsvík. Samningurinn var undirritaður 15. júní síðastliðinn með tilteknum fyrirvörum. Allir fyrirvarar hafa nú verið uppfylltir, og tekur samningurinn gildi 1.október 2010.

Moody's: Gengisdómur jákvæður en lánshæfi óbreytt

Matsfyrirtækið Moody´s telur nýlegan dóm Hæstaréttar um gengisbundin lán draga úr óvissu en ekki hafa áhrif á lánshæfismat ríkissjóð. Því mun Moody´s halda lánshæfiseinkunn Íslands áfram í Baa3 með neikvæðum horfum. Einkunnin er aðeins einu stigi frá svokölluðum ruslflokki.

Greining Arion: Vaxtalækkun upp á eitt prósentustig

Það er mat greiningar Arion banka að Peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 100 punkta (eitt prósentustig) á fundi sínum á morgun. Enda eru verðbólguhorfur hagfelldar, krónan hefur haldið áfram að styrkjast og skuldatryggingaálag á íslenska ríkið hefur lækkað.

Byggingavísitala hefur hækkað um 4,2%

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan september 2010 er 103 og hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 4,2%.

Amerískur risi kaupir íslenska dvergkafbáta

Bandaríska hátæknifyrirtækið Teledyne Benthos keypti í gær íslenska nýsköpunarfyrirtækið Hafmynd, sem þróar og framleiðir dvergkafbáta. Seljendur eru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Mallard Holding (félag Össurar Kristinssonar) og smærri hluthafar. Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital hafði milligöngu um söluna.

Skilar óendurskoðuðum reikningum

Eignarhaldsfélagið Akurey, sem er í eigu Kristjáns Jóhannssonar, stjórnarmanns í Arion banka, og konu hans, skilaði ársreikningum fyrir árin 2007 og 2008 í byrjun júlí síðastliðinn. Ársreikningarnir hafa ekki verið endurskoðaðir.

Olíuverzlunin gagnrýnir málflutning FÍB

Olíuverzlun Íslands hf. vill koma því á framfæri að forsvarsmenn félagsins eru ekki sammála mati Félags íslenskra bifreiðaeigenda á álagningu íslensku olíufélaganna. Á forsíðu Fréttablaðsins í dag eru birtar tölur frá FÍB þar sem fram kemur að íslensk olíufélög leggja að meðaltali 31 krónu á hvern bensínlítra.

29 milljarða velta á skuldabréfamarkaði

NASDAQ OMX Iceland tilkynnir að í dag var veltumesti dagur ársins á skuldabréfamarkaði, 29,1 milljarður. Fyrra veltumet á árinu var 25,9 milljarðar þann 12. mars síðastliðnum.

Metvelta í Kauphöllinni í dag

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 1,8% í dag í 31,4 milljarða viðskiptum sem er veltumesti dagur ársins að því er fram kemur í tilkynningu frá GAMMA.

Greining: Skuldabréfaútgáfa Landsvirkjunar jákvæð

Greining Íslandsbanka segir að þrátt fyrir hátt álag ofan á ríkistryggð bandarísk skuldabréf hljóti nýleg skuldabréfaútgáfa Landsvirkjunar að teljast jákvæð tíðindi, bæði gagnvart fyrirtækinu sjálfu og öðrum íslenskum aðilum sem hyggist sækja lánsfé á erlenda markaði þegar fram í sæki.

Gjaldeyrisforðinn styrkist vegna sölunnar á FIH

Búast má við að gjaldeyrisforði Seðlabankans verði kominn í 600 milljarða króna um áramótin, en forðinn styrkist vegna sölu á danska FIH bankanum. Seðlabankastjóri segir að styrking forðans hafi jákvæð áhrif á gengi krónunnar.

Greining: Verðbólgan minnkar í 4,1% í september

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki í september um 0,4% frá ágústmánuði. Ef spáin gengur eftir mun ársverðbólgan hjaðna úr 4,5% í 4,1% í september, en svo lítil hefur verðbólgan ekki verið frá ofanverðu sumri árið 2007.

Íslensk olíufélög leggja mest á

Álagning á hvern bensínlítra á sjálfsafgreiðslustöðvum íslensku olíufyrirtækjanna er talsvert hærri en gengur og gerist í Danmörku og Svíþjóð. Var meðalálagning til dæmis tvöfalt hærri hérlendis en í Svíþjóð árið 2009.

Þrír bankar eiga sjö hundruð fasteignir

Íbúðalánasjóður (ÍLS) og viðskiptabankarnir þrír eiga rúmlega 1.518 fasteignir víða um land. Þar af eru 1.208 einbýlishús, raðhús og annað íbúðarhúsnæði, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Gangi verstu spár eftir munu ÍLS og bankarnir þrír hafa leyst til sín í kringum 1.550 íbúðir um næstu áramót.

Mjatla fasteignum á markaðinn

Félag fasteignasala (FF), bankar og Íbúðalánasjóður hafa haft samráð vegna þess mikla fjölda fasteigna sem lánafyrirtækin eiga. Fyrirtækin munu ekki setja fasteignir í stórum stíl inn á markaðinn, enda myndi það ganga þvert á hagsmuni þeirra með fyrirsjáanlegum verðlækkunum.

FIH seldur fyrir 103 milljarða króna

FIH bankinn verður seldur fyrir fimm milljarða danskra króna samkvæmt tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Það gera 103 milljarðar íslenskra króna. Berlingske Tidende greindi frá því fyrr í vikunni að til stæði að selja bankann.

Sjá næstu 50 fréttir